Vorið - 01.12.1940, Page 9

Vorið - 01.12.1940, Page 9
V O R I Ð 77 Mamma fær jólagjöf. Það var vika til jóla. Jörgen gat varla sofið á næturnar fyrir áhyggjum og eftirvæntingu. Skyldi honum heppnast fyrirætlun sín? Mundi Jóhannes frændi hans skilja það, að þetta, sem honum hafði dottið í hug, gat eitt bjargað jólagleðinni fyrir honum og móð- ur hans. Honum hafði dottið þetta í hug fyrir fjórum dögum síðan. Áður hafði hann helzt óskað sér þess að hægt væri að hlaupa yfir jólin, óskað, að engin jól kæmu! En hann vissi nú, að jólin myndu koma, og þá fór hann að reyna að safna aurum fyrir jólagjöf handa mömmu sinni, því jólagjöf varð hún að fá. Og það varð meira að segja að vera eitthvað reglulega fallegt. Hann var, meðal annars, búinn að leita lengi að einhverj- um snotrum lampa, sem gæti far- ið vel í stofunni þeirra. Það gat verið að hann lífgaði eitthvað upp og bætti úr tómleikanum, sem ríkti þár inni. En seinna datt hon- um í hug, að þessi tómleiki myndi verða enn meiri, þegar lampinn skini á sig og móður sína á að- fangadagskvöldið. En hvernig væri að kaupa lag- lega ábreiðu, mynd eða eitthvað slíkt. — Nei — hvaða gagn var að því. Þótt hann gæti keypt allt skrautið, sem hann hafði séð í búðargluggunum, þá gat það ekki flutt jólagleðina inn í þetta litla heimili, þar ríkti aðeins sorgin. Pabbi hans var dáinn. Hann dó síðastliðið haust, eftir stutta legu. Já, það var orðin mikil breyting síðan í fyrra, svo mikil, að hann gat varla trúað því. En það var ekki nóg með það, að þau misstu pabba. Þau misstu líka litlu Karen. Litla inndæla systirin hans, fjögra ára hnokki, var komin langt í burtu, eitthvað vestur á land til Jóhannesar frænda. Þangað var svo langt, að það var óhugsandi að hún gæti komið heim til þeirra um jólin. Þaðan var tveggja daga ferð bæði á landi og sjó. Annars var það gott, að hún var þarna, því Jóhannes frændi var ríkur maður, og hann ætlaði víst að sjá um Karen litlu eins og það væri dóttir hans. Hér heima gat hún ekki verið, því síðan pabbi dó hafði mamma orðið að vinna á skrifstofu, en hann sjálfur vann við verzlun, svo heimilið var mannlaust allan daginn. Það var

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.