Vorið - 01.12.1940, Síða 11

Vorið - 01.12.1940, Síða 11
V 0 E I Ð 79 anum og horfði út í vetrarnóttina. Bara að hún væri ekki svona langl í burtu! Jörgen vissi, að hún var alltaf að hugsa um Karen. Hann var líka kyrr. Átti hann að segja henni leyndarmálið? — Nei---------- hann grúfði sig yfir dagblaðið — hann skyldi geyma leyndarmálið þessa fáu daga, sem eftir voru til jólanna. „Nei, Karen getur víst ekki kom-. ið heim að þessu sinni, hún getur ekki ferðast ein, og Jóhannes frændi á svo annríkt um þessar mundir, að hann má ekki vera að því að koma með henni“, sagði mamma sorgbitin. „Nei, það er víst alveg vonlaust, mamma“, sagði Jörgen á bak við blaðið. Það var hreinasta tilviljun, að Jörgen hafði fengið þessa hug- mynd, sem hann bjó nú yfir eins og merkilegu leyndarmáli. Hann hafði fengið hana frá félaga sín- um, Pétri Karlssyni. Hann hafði séð Pétur skrifa utan á bréf, og þegar hann sá, að það átti að fara til sama þorpsins, sem Jóhannes frændi átti heima í, spurði hann Pétur, hvort hann þekkti einhvern þar. „Já“, svaraði Pétur, „ég á þar systir, sem er gift. Við eigum von á henni heim um jólin með alla fjölskylduna“. Jö.rgen fann sting í hjartað. Það var víst af öfund, Pétur gat feng- ið sína systir heim með alla fjöl- skylduna, en hann og mamma hans urðu að hýrast alein. En þessi öfund stóð aðeins eitt augnablik, þ,á datt honum snjall- ræði í hug: Væri það ekki reynandi, að biðja systur Péturs að taka Karen með sér heim? Ég á nóga peninga fyrir fargjaldinu, og hætti bara við að kaupa jólagjöfina. Ég skrifa Jóhannesi frænda og skýri honum frá öllum málavöxtum. Segi hon- um, að mamma þrái að fá Karen heim um jólin. Eftir þessar hugleiðingar spurði hann Pétur, hvort hann héldi ekki að þetta gæti gengið, og fékk það svar frá Pétri, að það væri jafn- auðvelt eins og að hósta eða hnerra. Skrifaðu bara undir eins Þetta sama kvöld kom Pétur bréfunum í póstkassann, bæði til Jóhannesar frænda og til systur Péturs, og vegna þess hve tíminn var stuttur, sendi hann alla sparl- peningana sína — 25 krónur — um leið, í póstávísun. En nú var eftir að vita hvort Jóhannes frændi var maður með hjartað á réttum stað, eða maður. sem ekki skildi neitt. Það mundi bráðlega koma í ljós. Hann var vonandi góður maður, Jóhannes frændi. Hann gat varla búizt við svari fyrr en ef Karen kom sjálf. Hann hafði líka beðið Jóhannes að láta mömmu ekki komast að leyndar-

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.