Vorið - 01.12.1940, Side 17

Vorið - 01.12.1940, Side 17
VORIÐ 85 \ „Nú skulum við fá okkur mat- arbita, börn“, sagði gamli maður- inn og tók grautinn af eldinum, og jós honum upp í þrjár tréskál- ar, lét heita mjólk út á, og gaf hverju þeirra væna ostsneið með. Hjarðdrengurinn stóð upp, spennti greipar og blessaði mat- inn. Hinir horfðu undrandi á þetta, en borðuðu svo með góðri lyst“. „Aldrei hef ég fengið svona góð- an graut, sæta mjólk og góðan ost“, hvíslaði drengurinn að stúlk- unni. ekki heldur“, hvíslaði hún aftur. „Ætli það sé vegna félagsskapar ykkar, að mér finnst maturinn svo góður í kvöld“, sagði öldungurinn. „Ef til vill“, sagði hjarðdrengur- inn, með sinni glaðlegu, silfur- hreinu rödd, „Þú ert svo góður við okkur. Verða menn svona góð- ir við að búa einir?“ „Góðir, drengur minn, hvað er það? Ég reyni að gera skyldu mína, það er allt og sumt. Ég lifi kyrrlátu lífi með hjörð minni, og vonast eftir að fá frið himnanna, eins og sagt er að þeir friðsömu muni hljóta“. „Eins og sagt er?“ Hjarðdreng- urinn brosti glaðlega. „Veiztu þá ekki, hvaða dagur er í dag?“ „Hvaða dagur? — Er nokkuð sérstakt við daginn? — Jú, ég hef fengið gesti utan úr hríðinni. Ann- að veit ég ekki“. — Hann brosti á- nægjulega, lauk úr skálinni og stakk síðasta ostbitanum upp í sig. „Hafið þið nú fengið nóg, börn?“ sagði hann og stóð á fætur. Hann tók skálarnar burtu, og gerði snyrtilegt umhverfis þau. „Megum við sitja dálítið leng- ur?“ spurði hjarðdrengurinn. „Já, auðvitað, kæru börn“, svar- aði öldungurinn. Eldurinn lifnaði aftur við. „Nei, sjáið“, sagði öldungurinn, „það eru myndir í eldinum! Það er þorp — og sjáið — þarna koma hjón — konan ríður á asna, — en hvað þetta er skrítið. Maðurinn ætlar inn um dyr — en er vísað burt — fyígir konunni að gripa- húsi — sjáið þið það! — Nei, nú ljómar stjarna yfir gripahúsinu — englaskarar lengra burtu — stjarnan skín skærar — konan beygir sig yfir lítið barn — ein- hverjir koma með gjafir — það eru konungar — en hvað barnið er guðdómlegt! Mig langar líka að gefa þessu fallega barni eitthvað“. Drengurinn og stúlkan sögðu hljóðlega bæði í einu: „Hann skyldi fá fallegasta lambið okkar, ef hann væri hér“. Þá heyrðist hin milda rödd hjarðdrengsins: „Það er aðeins eitt, sem þetta barn vill eignast — hjörtu ykkar“. Öldungurinn leit upp: „Þekkir þú hann? Veiztu hver hann var — er?“

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.