Vorið - 01.03.1944, Blaðsíða 8

Vorið - 01.03.1944, Blaðsíða 8
4 VORIÐ mikið og hárbeitt sverð, og vissi eggin upp. Og enn lá sverðið í sömu skorðum, eftir allar þær ald- ir og umbyltingar, er síðan voru liðnar. En nú var það því nær brunnið sundur af ryði og svo hrörnaður umbúnaðurinn, að sverðið riðaði, er gengið var þar í nánd. Þegar konan leiddi drenginn fram hjá gjánni, spurði hann: „Hvers konar brú er þetta?“ „Salómon konungur lagði hana,“ sagði móðir hans, „og við köllum hana paradísarbrú. Komizt þú yfir gjána á þessari nötrandi brú — sverðsegginni, sem er þynnri en sólargeisli, þá er þér vís vist í paradís“; og hún brosti við og hraðaði ferðinni sem mest, en drengurinn nam staðar og horfði á sverðið, unz hún kallaði á hann. Hann hlýddi henni, en leitt þótti honum að hún skyldi ekki fyrr hafa sýnt honum þessa kyn- legu hluti, meðan tími var til að virða þá fyrir sér. Þau héldu nú áfram viðstöðu- laust, unz þau komu að hliðinu mikla, með súlnaröðunum fimm- földu. Þar stóðu í horni tvær svart- ar marmarastoðir á einum stalli og svo násettar hvor annarri, að vart varð komið hálmstrái í milli þeirra. Þær voru háar og tígulegar, með skrautlegum hausum og á þá skorin kynleg dýrahöfuð. Stoðirn- ar sjálfar voru alsettar merkjum og kroti, svo að ekki var gómstór blettur auður, og öðru fremur virt- ust þær vera slitnar og af sér gengnar, og gólfið umhverfis þær eytt og urið af troðningi. Drengurinn nam enn staðar og spurði móður sína: „Hvaða stoðir eru þetta?“ „Það eru stoðirnar sem Abra- ham forfaðir okkar flutti með sér frá Kaldeu og kallaði hlið réttlæt- isins. Sá, sem komizt fær milli þeirra, hann er syndlaus og rétt- látur fyrir guði.“ Drengurinn stóð kyrr og horfði stórum augum á stoðirnár. „Þú ert víst ekki að hugsa um að reyna að komast í milli þeirra?“ spurði móðir hans og brosti. „Sjáðu, hvernig gólfið í kringum þær er slitið af stimpingum hinna mörgu, er reynt hafa að komast gegnum bilið mjóa — en engum tekizt. Flýttu þér nú! Eg heyri hljóminn í eirhurðinni miklu; musterisþjónarnir þrjátíu leggjast nú'á þær til að loka þeim.“ Drengurinn litli lá vakandi í tjaldinu alla nóttina og gat ekki um annað hugsað en hlið réttlætis- ins, paradísarbrúna og rödd kon- ungs konunganna. Svo undarlega hluti hafði hann aldrei heyrt getið um. Hann fékk ekki slitið hugann frá þeim. Og morguninn eftir fór á sömu leið. Hann gat ekki hugsað um annað. Hjónin voru önnum kafin að taka niður tjaldið og koma því

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.