Vorið - 01.03.1944, Side 11

Vorið - 01.03.1944, Side 11
V O R I Ð 7 elsjakkanum, og Filippusi geðjað- ist ekki að hafa hann hjá sér. „Farðu burtu, Hinrik,“ sagði hann eftir að hafa staðið alllanga stund órólegur og reynt að losna við þennan nábúa. „Þú ert svo ræfilslegur og óhreinn, að ég vil ekki standa hjá þér.“ Hugsið ykkur, kæru börn. Haf- ið þið nokkurn tíma orðið fyrir því að verða fyrir móðgun af þeim, sem ykkur þótti vænt um? Það er sárt. Þessi ljótu orð Filippusar særðu Hinrik líka djúpt. Því að honum þótti mjög vænt úm litla prinsinn. Honum þótti svo vænt um, þegar Filippus talaði eitthvað við hann í skólanum eða á göt- unni. Hann blóðroðnaði af gremju, og hnipraði sig svo fast upp að veggnum sem honum var unnt. Filippus stóð nú einn, voldugur og öruggur og starði upp á prédikun- arstólinn. - Presturinn ræddi um, að drott- inn liti aðeins á hjartalagið, án til- lits til þess, hvort ytri búningur- inn væri garmar, flauel eða silki. Filippus hlustaði. Hver var ann- ars klæddur í flauel og silki í kirkjunni nema hann Presturinn hélt áfram: „Hver, sem gengur skrautlega búinn, en hefur hart og drambsamt hjarta og fyrirlítur fátæka með- bræður sína, hann nýtur ekki náð- ar drottins. Drottinn hefur ekki ást á slíkum mönnum." Filippus litli fölnaði í framan. Óafvitandi starði hann á prestinn og honum fannst hann horfa alltaf á sig og líta ógnandi á hann um leið og hann sagði: „Takið vel eftir því, að drott- inn fæst ekki um, hvernig þið eruð búin, hann lítur aðeins á hinn innri mann. Munið þið það, sem ríkir eruð og drambsamir, þið, sem móðgið fátæka meðbræður ykkar með hörðum og ógætilegum orð- um, á ykkur hvílir ónáð og reiði drottins.“ Þessi orð þrengdu sér inn í sál Filippusar. Ef Hinrik litli hefði tekið vel eftir, hefðu þau eflaust huggað hann; en hann var svo hryggur, að hann gat ekkert hlust- að á prédikunina, en hann grét í hljóði af sorg og sálarkvölum. Eftir messuna báðu nokkrir drengir Filippus að koma út og leika sér, en hann neitaði því. Hann horfði á eftir Hinrik, þegar hann læddist hljóðlega burtu, en litli prinsinn var ekki ánægður með sjálfan sig. Þegar hann kom heim, beið Jósep vinnumaður hans úti fyrir og sagði: „Filippus, þú gætir gjört mér greiða. Biddu nú föður þinn að lofa mér að skreppa heim í dag. Þú gerir nú þetta, af því að þú ert svo góður drengur.“ Vinnufólkið vissi, að hrepp- stjórinn, þó að hann væri strang- ur, neitaði syni sínum sjaldan um neitt.

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.