Vorið - 01.03.1944, Blaðsíða 16

Vorið - 01.03.1944, Blaðsíða 16
12 VORIÐ poka). Lesið þið svo bænirnar ykkar og verið þið góð börn, svo að álfarnir taki ykkur ekki. Verið þið nú sæl. (Fer). 4 .atr. (Nonni — Gunna). GUNNA (súöktandi, heldur í Nonna): O, ó, — elsku Nonni minn. Eg er svo ósköp hrædd. NONNI (reyrúr að bera sig vel): Svona, Gunna mín. (Strýkur um kollinn á henni). Vertu nú ekkert hrædd. Ég er hjá þér. Ég, — sem er karlmaður, og ég er eins og hann pabbi sálugi var. Við skulum nú bara setj- ast hérna á rúmið og tala sam- an. (Þau setjast). GUNNA: Má ég ekki halda í hend- ina á þér? Það er betra, þá er ég ekki eins hrædd. NONNI: Jú, jú, Gunna mín. GUNNA: Nonni minn, ert þú ekki ósköp hræddur við álfana og allt, sem er á ferðinni á gamla- árskvöld? Ó, — ef álfar kæmu nú hingað í nótt, — og kannske tröll líka. (Snöktir). NONNI: Svona, svona, Gunna mín. Vertu nú alveg óhrædd. Ég veit ekkert, hvort álfar og tröll eru til. Og ef það er til, þá gæti ég bezt trúað, að það væri gott við lítil börn, sem eiga eng- an pabba og enga mömmu, og allir eru vondir við. GUNNA: Ekki held ég það. Hún Jóka gamla hefur sagt mér sög- ur af svo voða stórum tröllum, sem gátu étið menn í einum munnbita, og um vonda álfa, sem hræktu í augun á mönn- um, svo að þeir urðu blindir. NONNI: Hún Jóka gamla. — Ég trúi henni nú ekki. Hún sagði mér í vor, að dýið hérna fyrir sunnan garðinn væri svo djúpt, að það næði alveg niður til ljóta karlsins. En svo fór ég þangað með smalaprikið mitt og ég gat alls staðar botnað með því. — Nei, — Jóku gömlu trúi ég ekki. GUNNA: Ja-á. En, en, — ef tröll- in kæmu nú, sem eru svo voða- lega stór. Heldur þú, að þú gæt- ir nokkuð ráðið við þau, þú, sem ert svona lítill? NONNI: Vertu nú ekki að hugsa um þetta, Gunna mín. En ég skal segja þér það, kerli mín, að ég ætla að verða maður, sannur íslendingur, eins og pabbi sál- ugi sagði. Ég ætla aldrei að blóta, — nema kannske hon- um Grími. AJdrei að berja neinn, nema hann Grím, en hann ætla ég að hýða svo, að rassinn á honum verði bara blár, þegar ég er orðinn stór. Á ég ekki að gera það? GUNNA: Ég veit ekki. — Jú, ég held þú ættir að gera það, ef þú þorir það. NONNI: Þori. — Þegar ég verð stór þori ég allt, skal ég segja þér. GUNNA: Ætlar þú líka að berja

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.