Vorið - 01.03.1944, Síða 19

Vorið - 01.03.1944, Síða 19
VORIÐ 15 inn. Hún er í grænum eða blá- um kyrtli með skaut. Með henni tvær stúlkur, sem bera ísl. iána. Fjallkonan sezt í hásæti, sem er á miðju sviði aftarlega. Sung- ið: Fjplladrottning). HULDUR OG HULDUM.: Lengi lifi Fjallkonan. Blessun og heill fylgi hverjum Islendingi. ÁLFAKÓNG.: — Fjallkona. Hér færi ég til þín tvö lítil börn. Mennirnir hafa búið svo að þeim, að þau óttast vættir lands- ins. Ég veit, að þinn vilji er, að þau læri að elska landið og treysta á það. FJALLKONAN: Heill álfakon- ungur. Heilar huldur og ljúfl- ingar. Velkomin mannanna börn, setjist hér hjá mér. (Börnin setjast á stóla, sem eru sinn hvoru megin við hásætið). Ég veit, að þið óttist álfa og huldur. En sjáið nú þenna hóp. í hverjum hól og hæð þessa lands búa hulin öfl. Ofl vin- semdar og blessunar, ef þau að- eins eru rétt skilin. Hollvættir og hamingjudísir. ÁLFAR: Já. — Hollvættir og hamingjudísir viljum við vera hverju landsins barni. FJALLK.: Ég veit þið óttist tröllin í fjöllunum, en þau eru líka góð. Konungur. Lát þú kallara þinn kalla tröllin úr fjöllunum. ÁLFAK.: Kallari, kalla þú tröllin úr hrikabjörgum. KALLARI (kallar): Tröll úr hrikabjörgum. Komið! Fjall- konan kallar ykkur! TRÖLLIN (risi og skessa, koma irtn). FJALLK.: Tröll. — Mennirnir hafa kennt þessum börnum að óttast ykkur. Ávarpið þau. RISINN: Við erum stór og hrika- leg, börnin góð, eins og Islands fjöll. Við erum líka stöðug og traust, eins og þau. — Aldrei að svíkja. — Aldrei að sýna ótryggð. Alltaf að vera vinum vinur. — Þetta er okkar hugs- un. — Það er okkar líf. Þessar sterku hendur (rétta iram hendurnar) skulu bera ykkur yfir torfærur og vegleysur. Trygg, — dauðtrygg viljum við vera, hverju landsins barni. ÁLFAK: Hyllið hin traustu, tryggu tröll með söng. ÁLFAR: Syngja. Lag: Máninn hátt. Vekið drengskap, trú og tryggð, teljið orku í þjóð. Hamrabúar — verndið hreysti og manndómsglóð. Tryggu tröll. Traustu fjöll, tign á brúnum skín. Á íslandi er heillin öll og hamingja mín. FJALLK: Tröll. — Ég þakka ykkur hingaðkomuna. Haldið áfram að vera ímynd hinnar bjargföstu tryggðar. — Hverfið til heimkynna ykkar.

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.