Vorið - 01.03.1944, Blaðsíða 21

Vorið - 01.03.1944, Blaðsíða 21
V O R I Ð 17 harmar gleymast. Hvert blóm, — hvert barn vil ég gleðja. Vor í heimi, — vor í hug vil ég skapa. Það er vilji minn. Það er mitt líf. ÁLFAK.: Hyllið vorið með söng. ÁLFAR (syngja: Vorið er komið og grundirnar gróa). FJALLK.: Vor. — Ylja þú. — Gleð þú. Græddu vetrarsár. Tak þér sæti með oss. VORIÐ: Ég þakka þér, Fjallkona. Ég skal kyssa trúna á gróand- ann í heimi og huga inn í sálir barna þinna. FJALLK.: Ég veit þið kvíðið sumrinu. Þá þurfið þið að ganga berfætt um urðir og eggjagrjót í erfiðum smalagöngum. Þá er þess oft krafist, að þið innið af höndum erfið störf, sem eru veikri getu ykkar um megn. En nú skal sumarið sjálft koma til ykkar. (Við konung): Konung- ur, kalla þú sumarið. ÁLFAK.: Kallari. Kalla þú sum- arið. KALLARINN: Sumar. — Kom þú. Fjallkonan kallar þig. SUMARIÐ (kemur. Stálpuð stúlka, klædd íagurgrænum búningi, með blóm á barmi). FJALLK.: Sumar. Mennirnir hafa beygt svo hugi þessara barna, að þau kvíða komu þinni. Tala þú. SUMARIÐ: Elsku börnin mín. Ég flýg um hauður og haf. Ég vek söng í hverju fuglsbrjósti og sælu í hverju fiðrildishjarta. Ég skreyti allt blómum. Hverri jurt gef ég þroska. Hverjum hug vaxtarmátt. Ég fylli loftið angan. Allt, sem lifir, vill stíga dans með sólargeislunum. Ég vil kyssa sólþrá og lífstrú inn í hvert hjarta. Þetta er minn vilji. — Þetta er mitt líf. ÁLFAK.: Hyllum sumarið með söng. ALLIR (syngja: Nú er sumar). FJALLK.: Sumar. Þökk sé þér. Sendu geisla þína á hvern stað, svo að hvergi geti myrkur leynst. Tak þér sæti með oss. SUMAR: Ég þakka þér, Fjallkona. Ég skal lita kyrtil þinn grænan og fjöllin þín blá. Ég skal hella kvöldroðagulli á hvíta faldinn þinn. Heill þér, fjallkona. FJALLK.: Ég veit þið óttist haust- ið. Ykkur finnst það vera for- boði grimms og miskunnarlauss vetrar. Hauströkkrið leggst á sál ykkar og lamar von og gleði. En nú vil ég láta haustið tala við ykkur. (Við konung): Kon- ungur, kalla þá á haustið. ÁLFAK.: Kallari, kalla þúhaustið. KALLARI: Haust. — Kom þú, Fjallkonan kallar þig. HAUSTIÐ (stúlka í gulbleikum búningi kemur inn). FJALLK.: Haust. Þú vekur þess- um börnum kvíða með komu þinni. Tala þú. HAUSTIÐ: Að vísu er ekki eins glatt yfir mér og systkinum

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.