Vorið - 01.03.1944, Page 24

Vorið - 01.03.1944, Page 24
VORIÐ JP. JERNDORFF JESSEN: Hundamerkið. Frú Hansen rak ofurlítið þvottahús og þar þvoði hún og sléttaði fyrir nágrannana, en at- vinnan var ekki meiri en það, að hún og sonur hennar, Óli, gátu lif- að af því sæmilegu lífi. Og nú var Óli að koma heim. Hann bar stóra þvottakörfu i fanginu, en þrátt fyrir það, þótt hann væri að verða uppgefinn af að kafa snjóinn með þessa þungu byrði, ljómaði þó gleðin úr aug- um hans og honum fannst lífið leika við sig. Jólaleyfið var byrj- að, jólasnjórinn var kominn, og svo var það hann Kátur, nýi vin- urinn hans, það var magur og ræf- ilslegur hundur, sem hafði komið hlaupandi til hans fyrir nokkrum dögum, en hljóp nú glaður og hressilegur við hlið hans. Stund- um datt hann á höfuðið í snjóinn, þegar hann var að horfa á hús- bónda sinn og leika listir sínar fyrir hann. Já, Óli var vissulega í góðu skapi, því að hann hafði með mestu samvizkusemi lesið allar auglýsingar í blöðunum undan- farna daga, en hvergi hafði hann séð auglýst eftir töpuðum hundi. Hann var auðvitað búinn að til- kynna lögregluþjóninum, honum Andersen, komu þessa hunds, en ef enginn eigandi gæfi sig fram næstu daga, þá varð hundurinn hans réttmæt eign. Hann blístraði fjörlega, þegar hann - hljóp upp kjallarastigann, og heilsaði mömmu sinni áður en hann var kominn alla leið.------- — En, hvað var nú þetta? Þarna stóð Andersen lögregluþjónn á gólfinu. Var nú eigandi hundsins fundinn? „Góðan daginn, vinur minn,“ mælti lögregluþjónninn vingjarn- lega. „Já, við höfuð komizt eftir, hver var eigandi hundsins, það var flækings ræfill, sem sálaðist á þjóðveginum fyrir rúmri viku. Ég kem beint af lögreglustöðinni til að segja þér, að þú mátt eiga hundinn,-------en mér þykir leitt, ------- því miður verð ég að til- kynna þér, að þú verður að vera búinn að kaupa handa honum merki fyrir áramót. Það kostar 10 krónur.“ Óli starði nokkra stund þegj- andi á þennan stóra mann og vissi ekki, hvort hann ætti heldur að hryggjast eða gleðjast. Þó virtist gleðin ætla að verða yfirsterkari, því að nú átti hann Kát, þrátt fyrir allt, en á eftir kom hryggðin.

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.