Vorið - 01.03.1944, Qupperneq 34

Vorið - 01.03.1944, Qupperneq 34
30 V O R I Ð Orðsending. Um leið og Vorið fer af stað í 10. sinn þykir rétt að fylgja því úr hlaði með nokkrum orðum. Þess er þá fyrst að geta, að verð ár- gangsins verður hið sama og síðastliðið ár — 5 krónur. — Verður hægt að láta þetta lága verð haldast áfram meðal annars vegna þess, að kaupendum hefur fjölgað talsvert á árinu, sem var að líða. En í því sambandi viljum við nota tæki- færið og þakka hjartanlega öllum út- sölumönnum ritsins fyrir alla þeirra fyr- irhöfn, sem sumir gera án nokkurs end- urgjalds, en aðrir fyrir lítilfjörleg sölu- laun. Vorið á þessum mönnum mikið að þakka. Þá ber ekki síður að þakka öllum kaupendunum fyrir skilsemi þeirra og góða samvinna. Enn eiga þó allmargir kaupendur og útsölumenn eftir að gera skil fyrir síð- astliðið ár, en við vonum fastlega, að greiðsla berist með næstu póstferðum. Þá þökkum við einnig mörg og vingjarn- leg bréf, sem Vorinu hafa borizt. Okkur þykir vænt um slík bréf og óskum eftir að fá sem mest af þeim. Margir spyrja eftir eldri árgöngum, en þeir eru nú flestir að verða uppseldir. Þó eru eftir nokkur eintök af 4., 5., 6. og 9. árgangi. Ennfremur er nokkuð til af ein- stökum heftum hinna árganganna, og geta nýir kaupendur fengið eitthvað af þeim í kaupbæti, ef þeir óska. Enn vantar okkur góða útsölumenn, einkum í sveitunum, og enn heitum við á alla okkar gömlu og góðu útsölumenn, að reyna að fjölga kaupendum á þessu ári. Þá væri Vorinu kærkomið að fá efni til birtingar, og jafnvel góðar og sér- kennilegar myndir. Hafið svo öll hjartans þökk fyrir sam- starfið á liðna árinu. Við vonum að fá að njóta velvildar ykkar og skilsemi á hinu komandi ári. Utéefendur. Duglegir útsölumenn. Þessir útsölumenn hafa flesta áskrif- endur: Helgi Hannesson, kennari, ísafirði 145 Frú Þóra Jónsdóttir, Siglufirði .... 85 Eyþór Einarsson, Kvíabóli, Nes- kaupstað .................... 75 Unnur Friðþjófsdóttir, Patreksfirði 38 Ingimundur Olafss., kennari, Seyðisf. 34 Þá hefir Guðjón Hallgrímsson, kenn- ari, Akranesi, pantað 60 eintök næsta ár, og allmargir aðrir hafa þegar beðið um fleiri eintök. Hver verður hæstur næsta ár? alltaf verið á sjónum, pabbi minn?“ spurði Kalli. „Ónei, vinur minn, við hleypt- um inn á ísafjörð, því að okkur sýndist brimið svo mikið hérna, og höfum verið þar þangað til í morgun. Þá var kominn austan strekkingur, svo að við fengum ágætt heim.“ Kalli var svo frá sér numinn af fögnuði, að hann fann ekkert til þess, að hann var krókloppinn, og brimhljóðið, sem honum stóð stuggur af áðan, hljómaði nú eins og fagurt sönglag í eyrum hans. Baldvin Árnason, 13 ára, Akranesi.

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.