Vorið - 01.03.1944, Síða 35

Vorið - 01.03.1944, Síða 35
V O R I Ð 31 Dægradvöl. 1. Niðri í skúffu eru geymd 10 pör af svörtum og 10 pör af hvítum sokk- um. Ef þú leitar í skúffunni í myrkri, hvað þarftu þá að taka marga sokka upp til að vera viss um að fá eitt par af samstæðum sokkum? 2. Ef þú tekur tvö epli af þrem, hvað hefurðu þá mörg? 3. Eggjafjöldi í körfu tvöfaldast á hverri mínútu. Eftir klukkutíma er karfan orðin full. Eftir hve langan tíma var hún hálf? 4. Tíu feta langur kaðalstigi hangir nið- ur með skipshlið. A milli þrepanna er eitt fet og neðsta þrepið nemur við hafsflötinn. Það er aðfall og sjór- inn hækkar um hálft fet á hverjum klukkutíma. Eftir hve langan tíma nær sjórinn upp að þriðja þrepinu? 5. Tveir feður og tveir synir skutu hver um sig eina önd, og þó skutu þeir aðeins þrjár endur samtals. Hvernig gat það skeð? 6. Norskur Norðmaður í Norð'ir-Noregi. Hvað eru mörg r í því? Gatur. 1. Á sumardegi sézt ég oft seggja vafinn mundum, ég er hafinn hátt á loft, en hleyp í jörðu stundum. 2. Bræður tveir í baugakleif bjuggu lengi saman, hvor af öðrum hárið reif, þeir höfðu ei annað gaman. 3. Sá ég sitja systur tvær á sandi, nógar eiga nöfnur þær á landi. Kúra þær fram við kaldan sjá með bökin blá, hvorug þungt þenkjandi. 4. Tveir menn gengu á f jall og báru það á fótunum, sem báðir hétu. 5. Bóndinn er af austurfjöllum, konan er með björgum fram, sonurinn milli fjóss og bæjar, vinnumaður á hverju þaki, eldakerlingin allra yndi. Hvað hétu þau? RÁÐNING Á GÁTUM. 1. Köngurló. 2. Eldurinn. 3. Ljár. 4. Augað. 5. I eggskurn. 6. Bárur. Gaman og alvara. Þrír litlir krakkar voru að leika sér. Hans var brúðguminn, Anna brúðurin og Kristján, sem var yngstur, átti að vera barnið þeirra. En þegar Hans og Anna létust vera búin að gifta sig, leiðist Krist- jáni litla og fer að skríða til systkina sinna. Þegar Anna sér það, kallar hún til hans og segir: „Sussu, sussu! Þú mátt ekki róta þér. Barnið má ekki koma strax, þegar við erum svona alveg ný- gift. Eg verð að minnsta kosti að telja upp að hundrað“. Kennslukonan: „Mikill sóði ertu, Pét- ur. Þú hefur ekki þvegið þér áður en þú fórst í skólann. Eg get séð, hvað þú hef- ur borðað í morgun".

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.