Vorið - 01.06.1944, Page 7

Vorið - 01.06.1944, Page 7
V O R I Ð 37 göngin, þar sem eirlúðurinn reis upp við vegginn. Þegar hann virti fyrir sér lúður- inn og minntist þess, að sá sem náð gæti hljóði úr honum, mundi ná yfirráðum yfir öllum þjóðum heims ,fannst honum hann bera af öllu öðru ,er hann hafði séð; og hann settist á gólfið hjá lúðrinum og horfði á hann hugfanginn. Hugurinn hvarflaði að því, hve mikið það væri að vinna allar þjóðir heimsins á sitt vald, og hann langaði svo sárt til að geta blásið í lúðurinn. En hann sá, að það var ómögulegt, svo að hann dirfðist ekki einu sinni að hugsa til þess. Þannig sat hann tímum saman, en hann vissi ekki, hvernig stund- irnar liðu. Hann hugsaði um það eitt, hve mikils væri um það vert, að ná öllum þjóðum á sitt vald. í þessum sömu súlnagöngum sat vitringur einn og var að kenna lærisveinum sínum. Og hann sneri sér að einum þeirra, sem sat við fætur hans og sagði, að hann væri svikari. Andinn hefði opinberað sér, að þessi unglingur væri út- lendur, en ekki af ísraelsætt. Og nú spurði vitringurinn hann, hví hann hefði laumast í hóp læri- sveina sinna, undir fölsku nafni. Útlendi unglingurinn stóð upp og sagði, að hann hefði sótt yfir eyðimörkina og siglt yfir höfin miklu, til þess að heyra útlistaða hina sönnu speki og lærdóminn um hinn eina sanna guð. „Sál mín er að örmagnas't af þrá,“ mælti hann. „En ég vissi, að þú mundir ekki fræða mig, nema ég segðist vera ísraelsmaður. Þess vegna sagði ég þér ósatt, til þess að fá svalað þrá minni. Og ég bið þig: leyfðu mér að vera hjá þér.“ En vitringurinn stóð upp og fórnaði höndum. „Það er jafn ómögulegt að þú fáir að vera hér kyrr, eins og það er öllum ofvaxið, að biása í stóra eirlúðurinn þarna, sem við köllum rödd konungs kon- unganna. Þér er með öllu óheimilt að stíga fæti í musterið, þar sem þú ert heiðingi. Flýt þér því héð- an; annars munu lærisveinar mín- ir ráðast á þig og misþyrma þér, því að þú saurgar musterið með návist þinni.“ En unglingurinn stóð kyrr og mælti. „Ég vil hvergi fara, því að hér nýtur sál mín næringar, en hvergi ella. Ég kýs mér heldur að deyja hér fyrir fótum þér.“ Hann var varla búinn að sleppa orðinu, er lærisveinarnir stóðu upp til þess að reka hann burtu. Og þegar hann bjóst til varnar, réðust þeir á hann, byltu honum niður og ætluðu að drepa hann. En drengurinn sat þar rétt hjá og heyrði allt, er fram fór. Hvílík harðýðgi! Ó, að ég gæti blásið í lúðurinn, því að þá væri honum borgið, sagði hann við sjálfan sig. Hann stóð upp og lagði hendina á lúðurinn. Hann óskaði að geta lyft honum að vörum sér, — ekki af því, að hann langaði til að verða

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.