Vorið - 01.06.1944, Side 11

Vorið - 01.06.1944, Side 11
VORIÐ 41 heim til mömmu og litlu systkin- anna með allan varninginn. En þegar á daginn leið smádofn- anði yfir Jóni. Hann sá pabba sinn og hásetana vera að súpa á flösku við og við, og hann skildi vel, hvaða afleiðingar það gæti haft. Hann hafði stundum orðið þess var heima, einkum í sambandi við kaupstaðarferðir, að pabbi hans og hásetarnir voru drukknir, og létu þá oft illa. Og nú rifjaðist margt upp fyrir honum um slys og vandræði, sem hann hafði heyrt um af völdum áfengisins. Ella gamla hafði til dæmis sagt honum frá bát, sem fórst með allri áhöfn fyrir skömmu, í rjómalogni, af því, að mennirnir voru ölvaðir og reru bátnum upp á sker, svo að honum hvolfdi. Nú voru hásetarnir allir orðnir drukknir, og pabbi hans líka. Og þegar þeir voru loksins tilbúnir, og ætluðu að leggja af stað, var álið- ið dags, og tekið að hvessa. Maður nokkur kom ofan að bátnum, þeg- ar þeir voru að leggja af stað. Og er hann sá, hvernig á stóð, bað hann formanninn að fara ekki. Það færi að dimma, og veðrið væri ekki gott. En þeir sögðu, að hann varð- aði ekkert um þetta. Þeir mundu komast heim. Og svo ýttu þeir frá bryggjunni og héldu af stað. Vindurinn var á eftir, svo að þeir settu upp segl og sigldu. Það gekk hálf illa að koma upp segl- inu, en samt heppnaðist það. Þá var stýrið sett fyrir bátinn, og fannst Jóni litla oft litlu muna, að pabbi sinn félli útbyrðis meðan á því stóð. Honum blöskraði, hve hugur hans var nú reikull og hönd- in óstyrk. Svona hafði hann ekki séð hann á sjó fyrr. Hugur hans var allur í uppnámi. Hvernig mundi lendingin á Gili ganga nú? Svo var siglt og sopið á flösk- unni við og við, og sungið af mik- illi raust. Jón litli sat hjá pabba sínum á þóftunni, hélt um stjórnvölinn með honum og reyndi að hafa gát á öllu. Tveir hásetarnir voru sofn- aðir, og hinir tveir rorruðu draf- andi á þóftunni miðskipa. Veðrið versnaði óðum. Formað- urinn skipaði að lækka seglin. En enginn hásetanna gat hreyft sig. Jón litli þaut að dragreipinu og gat að lokum losað það og lækkað seglið. En nú var hönd föður hans svo óstyrk og hugur hans svo sljór, að báturinn var sem stjórnlaus og sjórinn fossaði inn. Jón þaut að stýrinu, ýtti föður sínum frá því og gat rétt bátinn. Og í sama bili sá hann í hálfrökkr- inu, að þeir stefndu beint á eitt skerið við lendinguna á Gili. Með herkju brögðum gat hann sveigt fram hjá skerinu og inn í sundið. Og nú var líf hans og allra hinna í höndum hans. Hann neytti allra krafta og allrar aðgæzlu. Engu mátti skeika. Feikna alda kom undir bátinn og bar hann óðfluga nær landi. Þá þreif pabbi hans

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.