Vorið - 01.06.1944, Side 15

Vorið - 01.06.1944, Side 15
VORIÐ 45 akrinum hans föður míns, þjófur- inn þinn?“ Persturinn sneri sér að Lao Wang með reiðisvip. „Þjófur. Ég. . . . ég. . . . þjóf- ur! Ég er enginn þjófur! Ég er eng- inn þjófur! Ég er æðsti prestur musterisins!“ „Það getur vel verið,“ sagði Lao Wang og lét sér hvergi bregða. „En hvað ert þú að gera hér inni á maísakrinum? Nú verður þú að koma með mér heim til föður míns og gera grein fyrir ferðum þínum.“ Presturinn þverneitaði að fara með honum og hótaði Lao Wang, að yfir hann skyldi koma alls konar ógæfa. En Lao Wang sat við sinn keip. Lurkurinn, sem hann hélt á, var ekkert mjúkur að sjá, og presturinn varð að láta sér lynda að fylgjast með drengnum. Faðir Lao Wangs varð mjög skelkaður, þegar hann sá hver það var, sem sonur hans hafði klófest. En presturinn sagði honum frá fyrirburðinum. F rá ókunna drengnum, sem hann hafði nú gleymt nafninu á, og loks frá guðalíkneskinu úti á akrinum. Lao Wang bar óttablandna lotningu fyrir prestinum. Hann var þó í þjónustu musterisins. En þó gat hann ekki að sér gert að brosa í lauma að þessu einkenni- lega fyrirbæri.-------------Æðsta prestinum er ógnað með barefli Lao Wangs! Presturinn varði mál sitt af kappi, en þegar hann sá efasvip- inn á andlitum áheyrenda sinna, bað hann þá að koma með sér til musterisins. Lao Wang og faðir hans létu að orðum prestsins og gengu með honum til musterisins. En þegar þeir komu þangað og sáu, að regn- guðinn stóð á sínum venjulega stað, og heldur ekki nein merki þess, að hann hefði hreyft sig það- an, varð presturinn hljóður við. Þegar þeir feðgar héldu aftur heimleiðis, höfðu Lao Wang áskotnazt 10 gullpeningar. Prest- urinn kærði sig ekki um, að þessi saga kæmist í hámæli. Þetta sama kvöld hittust dreng- irnir aftur. Og það var auðvitað rætt um viðburði dagsins. Tsao Ling sagði, að sitt hlutverk hefði reynzt miklu auðveldara en hann bjóst við. Maísakurinn lá því nær alveg að . musterismúrnum, sem ekki var sérlega hár, og þegar svo heppilega vildi til, að enginn maður var í sjálfu musterinu, reyndist það næsta auðvelt að stela líkneskinu, sem var úr tré, og því mjög létt. Því næst negldi hann það á stöng, og bar það þann- ig yfir akurinn. Það hafði aftur reynzt erfiðast að koma því aftur á sinn stað, en hafði þó tekizt slysalaust. Lao Wang þakkaði vini sínum fyrir aðstoðina, en nú var aðeins eftir að vita, hvort allt þetta hefði hin tilætluðu áhrif.

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.