Vorið - 01.06.1944, Blaðsíða 18

Vorið - 01.06.1944, Blaðsíða 18
48 VORIÐ Stjörnurnar. — ÆVINTÝR. — Það var orðið dimmt. Jörðin var þakin snjó, sem glitraði eins og stjörnur. En uppi á dimmbláum himninum leiftruðu stjörnurnar og skinu skært yfir hina hvít- klæddu jörð. Lísa litla sat með með hönd undir kinn og horfði með stóru, bláu augunum sínum rannsakandi á stjörnumþakinn himininn. „Hvernig skyldu allar þessar stjörnur hafa orðið til?“ tautaði hún fyrir munni sér. „Ætli það séu gluggar, sem englarnir horfa í gegnum niður til okkar, eða eru það ef til vill augu englanna, sem horfa niður á okkur, og depla þeim til okkar?“ Litla stúlkan sat kyrr, og starði áfram upp í himininn, eins og hún væri að rannsaka, hvort stjörnurn- ar væru gluggar eða augu engl- anna. „Mér er ómögulegt að sjá það,“ andvarpaði hún að lokum; „þær eru svo óskaplega langt í burtu.“ „Lísa, Lísa, ert þú hér? En hvað það er dimmt hjá þér.“ Lítil stúlka kom léttilega hopp- andi í áttina til Lísu og faðmaði hana að sér. „Ó, Lísa, ég þráði þig svo heitt,“ sagði litla stúlkan. „Eg er ein heima. Pabbi er farinn í ferðalag, og svo hljóp ég burt frá barnfóstr- unni.“ „Ég er líka ein, Lóra,“ sagði Lísa og horfði brosandi á vinkonu sína. „Mamma fór til ömmu, af því að hún er lasin. Friðrik fór með henni, og Kristín gamla er að hjálpa Önnu í eldhúsinu. Ég er svo glöð yfir að þú komst.“ Ljóshærða stúlkan strauk hend- inni yfir hina dökku, hrokknu lokka litlu spönsku stúlkunnar. Því að Lóra eða Dolores, eins og hún hét fullu nafni, var sunnan frá Spáni. Það var Lísa, sem hafði stytt nafn hennar. „Hvað varst þú að gjöra ein í myrkrinu?“ spurði Lóra. „Ég var að hugsa um, hvernig stjörnurnar hefðu orðið til. Veizt þú, hvort það eru gluggar eða augu englanna?“ „Gluggar eða augu?“ hrópaði Lóra brosandi. „Nei, góða Lísa, þær eru hvorugt." „Er það ekki. Það var leiðin- legt,“ andvarpaði Lísa. „Mamma hefur sagt mér, hvern- ig stjörnurnar verða til. Hún sagði mér það, þegar við áttum heima á Spáni,“ sagði Lóra, og röddin titr- aði af tilhugsuninni um gamla heimilið og móður sína, sem nú var látin og hvíldi undir hinum dimmbláa himni Spánar. „Segðu mér það þá,“ sagði Lísa áköf. „Já, stjörnurnar eru — nei, gettu fyrst einu sinni, góða Lísa,“

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.