Vorið - 01.06.1944, Page 23

Vorið - 01.06.1944, Page 23
V O R I Ð 53 hverfur eitthvað upp á við. Jæja, segir litli fiskurinn. Eg ætla að doka hérna við og sjá, hvort ekki kemur annar biti. Varla hafði hann sleppt orðinu, þegar fallegur biti kom svífandi niður til hans. — Mér hlýtur að vera óhætt að borða þennan bita, fyrst stóri, vitri fiskurinn gjörði það. Og svo gleypti hann bitann, en hvarf samstundis á eftir stóra fiskin- um upp í einhvern ókunnan heim. Eftir eina mínútu lá hann spriklandi í báti fiskimannsins hjá stóra og vitra fisk- Jæja, eru stóru fiskarnir þá svona heimskir? sagði litli fiskurinn um leið og hann gaf upp andann. Ungu vinir mínir! Svona er líka sagan um tóbakið. Af hverju byrja ungir piltar og ungar stúlkur að reykja, eða neyta annars tóbaks? — Ætli nokkrum þyki það gott í fyrstu? Nei, unga fólkið byrjar á að reykja ein- göngu vegna þess, að það sér full- orðna fólkið gjöra það, fína menn, bæði karla og kon- ur. Það hlýtur að vera gott og rétt að reykja, þegar fína og vitra fólk- ið gjörir það, hugsar drengurinn og stúlkan, sem bæði .vilja verða stór og vitur. Ég ætla aðeins að fá mér einn vindling, hugsa þau. Það ætti þó að vera óhætt. Ef það er vont eða óhollt, þá hætti ég. Og svo bíta þau á agnið, og það fer al- veg nákvæmlega fyrir þeim eins og litla, heimska fiskinum. Þau festast á agninu, og geta aldrei los- að sig þaðan aítur ævilangt. Það gagnar þeim ekkert, þótt þau sjái, að stóru, fínu og vitru mennirnir voru ekki eins vitrir og þau höfðu haldið. Þau sitja alltaf föst við tó-

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.