Vorið - 01.06.1944, Side 24

Vorið - 01.06.1944, Side 24
V O R I Ð Undralæknarnir. í bæ einum eru þrír læknar, sem heita Loít, Vatn og Sól. Dag nokkurn kom kona til bæj- arins með lítinn strák, sem hún átti. Hann var mjög heilsutæpur og gat ekki leikið sér úti með öðr- um börnum. Þegar konan gekk eftir götunni, sá hún auglýsingu á húsi einu frá Loft lækni. Hún fór þar inn. I bið- salnum var glugginn opinn. Þá varð konan hrædd um, að litla drengnum yrði kalt. Hún óttaðist, að hann fengi kvef. Þess vegna lokaði hún glugganum hljóðlega. Svo kom röðin að þeim. Læknirinn spurði, hvað væri að drengnum. Konan sagði, að hann væri mjög heilsutæpur. Með- an læknirinn rannsakaði hann, sagði konan frá, hve varlega hún færi með hann. baksnautnina og verða nauðug, viljug að eyða fé sínu fyrir eitur, sem spillir heilsu þeirra og gerir þau fátækari en ella. — Það er hvorki karlmannlegt, kvenlegt eða fínt að reykja, og því síður hollt. Tóbaksnautn er ósiður, sem verð- ur að leggjast niður. Bráðum kem- ur röðin að ykkur að velja um það, hvort þið ætlið að bíta í tóbaks- agnið, eða hafna því. Það ætti ekki að vera erfitt val fyrir ykkur. „Hefur hann ekki getað verið úti?“ „Jú, hálfa klukkustund, dag og dag. Lengur hef ég ekki þorað að hafa hann úti, vegna þess, hvað hann er kulsæll. En þegar allra heitast er, fær hann að fara í bað. Eg hef reynt að gæta þess að verja hann fyrir dragsúg, og venjulega hef ég 22 stiga hita inni.“ „Þessu get ég vel trúað,“ sagði læknirinn. „En þetta þarf að breyt- ast. Lofaðu honum að vera úti, svo að hann fái hreint loft. Það þarf að hafa gluggana opna, svo að loftið komist á hreyfingu, og gamalt loft. hreinsist burtu bæði í dagstofum og svefnherbergjum." Læknirinn benti á gluggann og hélt áfram: „Ég hef t. d. alltaf glugga opna, bæði í lækningastof- unni og biðsalnum. Einnig ættu menn að vera úti undir beru lofti eins mikið og hægt er. Þá verður fólk hraust og rjótt í kinnum. — íþróttir og fimleikar styrkja líkam- ann. En þegar fólk stundar fim- leika, verður það að vera létt- klætt. Einar stuttbuxur er nægi- legt. Loftið á að leika um beran líkamann. Hlýddu ráðum mínum! Það eru margir, sem hafa orðið heilbrigðir, við að fylgja ráðlegg- ingum mínum.“

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.