Vorið - 01.06.1944, Qupperneq 29
V O R I Ð
5g
Ur heimi barnanna
STJARNAN GÓÐA.
Skuggalegur maður lá í skítugu
porti bak við stórhýsi eitt í út-
hverfi stórrar borgar. Þarna var
allt óþokkalegt, óhreint og
skuggsýnt, vegna vöntunar á götu-
ljósum. Þetta var um kl. 3 að
nóttu. Maðurinn hafði setið á
knæpu um kvöldið, orðið út úr
drukkinn og stofnað til óeirða.
Svo fréttist, að lögreglan væri á
leiðinni þangað, þá sló öllu í dúna-
logn og hann slangraði einn um
götuna. Brátt slagaði hann burt
líka og flæktist fram til miðnættis.
Loks fór hann inn í þetta port og
lagðist þar fyrir, sofnaði og svaf
þar til við sáum hann í þessu
óhreina porti. Hann vaknaði rétt í
því, að augu okkar litu hið auma
líf slarkarans og drykkjumannsins.
Okkur sýndist hann líkastur
villidýri, sem hefur verið að berj-
ast og drepa og er nýbúið að sofa
úr sér grimmdina, en ef við skoð-
um hans innri mann, þá sjáum við,
að hann hefur hugsun eins og við,
hann iðrast sinna illu gerða, hann
minnist sinna góðu daga í sveit-
inni hjá mömmu sinni, þegar hann
var lítill, fallegur drenghnokki
með óspillta sál. En nú var sálin
hulin dimmum, kolsvö.rtum
skugga, sem ekkert auga gat séð í
gegnum, nema auga guðs. Hann
minntist þess, þegar móðir hans
var að kenna honum bænir og
þegar hann gekk til kirkju með
henni. Endurminningarnar urðu
að draumum um sælu sveitarinn-
ar, góða menn og móður, sem vildi
verja drenginn sinn með oddi og
egg fyrir áhrifum hins illa. En svo
komu í sveitina borgardrengir, sem
fengu hann með sér til borgarinn-
ar og báðu hann að koma bara
þetta eina kvöld inn á knæpuna og
skemmta sér með þeim, og hann
lét til leiðast. Þeir fóru að drekka
og báðu hann að fá sér eitt glas,
bara eitt, það gerði ekkert til. En
þetta eina glas varð að nautn.
Hann varð drykkjumaður og ræf-
ill. Loks dreymdi hann um jólin,
sem nú voru um garð gengin.
Hann mundi eftir stjörnunni góðu,
sem vísaði vitringunum á Krist.
Upp af þessum hugleiðingum
vaknaði hann við það, að skær
birta skein á hann. Hann stökk á
fætur með stýrur í augum og
minntist hins sterka kastljóss lög-
reglunnar. En þetta var ekki ljós-
ker lögreglunnar, það var ennþá
skærara. Þetta var engill guðs.
Hann benti til himins og sagði:
„Sjá, þar skín stjarnan góða.“ Og
enn sagði hann: „Sjá, þar skín
stjarnan góða.“ Hann gekk af stað
og stjarnan lýsti honum. Að lokum
kom hann á þann stað, sem stjarn-
an lýsti á. Það var litla sveita-
kirkjan hans. Hann heyrði sálma-
söng og gekk inn í kirkjuna. Innst
inni í kirkjunni sat gömul kona.
Hann þekkti hana, það var móðir
hans. Hann kúrði sig niður aftast í
kirkjunni. Hann skammaðist sín