Vorið - 01.06.1944, Qupperneq 32

Vorið - 01.06.1944, Qupperneq 32
62 VORIÐ FYRSTA FERÐIN MÍN. Það var í fyrra vor, að ég fékk að fara fyrstu ferð mína á sjó. Það var 22. maí, að „Esja“ kom hér við á Raufarhöfn. Ég fór með henni til Húsavíkur. Veður var gott, logn og sólskin. Lagt var af stað eftir hádegi. Komið var við á Kópaskeri og stanzað þar. Klukkan 12 um kvöldið komum við til Húsavíkur. Þar geta þessi stóru skip lagzt að bryggju. Ég var sótt um borð. — Húsavík þykir mér fallegur staður, og þar undi ég vel hag mínum. Ég var að finna afa minn og sjö móð- ursystur, sem þar eiga heima. Sú elzta er 20 ára, en sú yngsta er tveggja ára, svo að þar var nóg til að skemmta sér við. Þarna dvaldi ég í mánuð. Þá kom „Súðin“ og ég varð að fara heim til Raufarhafn- ar aftur. Á leiðinni milli Húsavík- ur og Kópaskers sofnaði ég, því að ég var sjóveik. — Dreymdi mig þá að ég sá eitthvað fyrir ofan skip- ið, sem líktist helzt einhverri ófreskju og var ég að horfa á hana. Þá fannst mér, að þessi ófreskja fleygja niður til mín knetti og fannst mér hann alleinkennilegur. En er ég ætlaði að grípa hann, missti ég af honum og hann lenti á þilfari skipsins. Ég hljóp af stað og ætlaði að ná í hann, en þar sem ég sá, að hann kom niður, var eng- inn knöttur, heldur stór blóðpoll- ur. Ég vaknaði og mér leið mjög illa á eftir. Ég komst í land á Rauf- arhöfn og sagði mömmu þennan draum, því að ég gat ekki gleymt blóðinu. „Súðin“ hélt áfram til Þórshafnar, sem er næsta skipa- höfn við Raufarhöfn. „Súðin“ sneri þar svo við til baka, sömu leið aftur. En daginn eftir kom þessi voðalega frétt, að það hefði verið gerð loftárás á „Súðina“ og var það á sömu slóðum, sem mig hafði dreymt drauminn. Svanfríður E. Viéfúsdóttir, 13 ára, Raufarhöfn. Amma gamla (við litla telpu, sem var ýkin í frásögnum sínum): „Þú mátt aldr- ei fara með ósannindi. Annars fer fyrir þér eins og smaladrengnum, sem kallaði „úlfur, úlfur“, til að ginna menn. Loksins kom úlfurinn og át upp allar kindurnar." „Át hann kindurnar?" spurði telpan. ,,Já,“ svaraði amma hennar. „Át hann þær allar?“ „Já.“ „Jæja, amma mín,“ sagði telpan. „Það er likt á komið með okkur. Eg trúi þér ekki og þú trúir mér ekki.“ ----o----- Háskólakennari nokkur, sem oft var nokkuð viðutan, hafði dvalizt uppi í sveit og var að fara heimleiðis úr sum- arleyfi. Þegar hann var seztur í járn- brautarvagninn og lestin komin af stað, fór hann að brjóta heilann um, hvort hann hefði ekkert skilið eftir. Hann tók upp vasabók sína, athugaði hana spjald- anna á milli og leitaði þar af sér allan grun. — Þegar hann kom á járnbrautar- stöðina kom dóttir hans fagnandi á móti honum, en þegar hún sá, að hann var einn síns liðs, sagði hún: „Pabbi! Hvar er hún mamma?“ Þá vaknaði gamli maðurinn eins og af svefni og sagði: „Já, þetta fann ég á mér, að ég hafði gleymt einhverju í sveitinni, þó að ég kæmi ekki fyrir mig, hvað það var!“

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.