Vorið - 01.06.1944, Side 34
64
VORIÐ
Dægradvöl.
1. Maður kaupir pappírsvörur fyrir
tvær krónur og fær kaupmanninum
fimm króna seðil. Kaupmaðurinn
getur ekki skipt, en skreppur út í
næstu búð og fær þar seðlinum skipt
í fimm krónupeninga. Þegar við-
skiptavinurinn hefur fengið pappír-
inn, og þrjár krónur til baka, fer
hann. Skömmu síðar kemur búðar-
maðurinn, sem skipt hafði seðlinum,
og segir, að hann sé falsaður. Kaup-
maðurinn fær honum ófalsaðan
fimm króna seðil í staðinn. Hve
miklu hefur kaupmaðurinn tapað á
þessum viðskiptum, í vörum og pen-
ingum?
2. Hvaða minnsta andafjölda er hægt
að komast af með, ef þær eiga að
synda í fylkingu, sem hér segir:
Tvær endur á undan einni önd, tvær
endur á eftir einni önd og ein önd á
milli tveggja anda?
3. Kunnugt er, að það þarf tólf einseyr-
isfrímerki í eina tylft. Hvað þarf þá
mörg tveggja aura frímerki í eina
tylft?
4. Faðir og tveir synir hans koma að
ferjustað. Faðirinn vegur 100 kg. og
synirnir 50 kg. hvor, en ferjan tekur
aðeins 100 kg. Hvernig geta þeir all-
ir komizt yfir ána á ferjunni?
5. Tvær járnbrautarlestir í hundrað
mílna fjarlægð hvor frá annarri, aka
eftir sömu brautinni, hvor á móti
annarri. Onnur fer með 60 mílna
hraða á klukkustund, en hin með 40
mílna hraða. Býfluga er á flugi með
25 mílna hraða á klukkustund. Hve
langa leið hefur hún flogið, þegar
lestirnar mætast, ef hún hefur lagt
af stað jafnt og þær?
Þegar ég fór í sveit.
Eg var 11 ára, þegar ég fór fyrst
í sveit í Gaulverjabæjarhrepp í
Arnessýslu.
Einu sinni í vonzku veðri, roki
og rigningu, átti ég að reka inn
kýrnar, en þær voru nokkuð ó-
þekkar, hlupu í burtu, settu upp
rassinn og hlupu útundan sér. Þá
fór að síga í mig, svo að ég fékk
mér kaðalspotta og lamdi þær
miskunnarlaust, þá gekk mér bet-
ur. Þær hlupu allar að fjósinu og
vildi hver verða fyrst að komast
inn í fjósið, því að ég barði þær
fyrir óþekktina, svo að þær tróðu
sér tvær inn um dyrnar og stóðu
hér um bil fastar í þeim. Þegar þær
voru komnar inn í fjósið, átti ég
að binda þær. Þegar ég var búinn
að binda allar nema eina og gekk
fyrir aftan hana, þá sparkaði hún
í mig, svo að ég datt í flórinn. Kýr-
in launaði mér illsku mína. Síðan
hef ég ekki barið neina skepnu.
Því að manni hefnist fyrir það.
Guðmundur Ivarsson, 13 ára.
VORIÐ
tímarit fyrir böm og unglinga. Koma
út 4 hefti á ári, minnst 32 síður hvert
hefti. Árgangurinn kostar kr. 5.00 og
greiðist fyrir 1. maí.
Utgefendur og ritstjórar:
Hannes J Magnússon, Páls Briems-
götu 20 Akureyri, og
Eríkur Sigurðsson, Hrafnagilsstr. 12,
Akureyri.
Prentverk Odds Bjömssonar.