Vorið - 01.12.1945, Blaðsíða 11

Vorið - 01.12.1945, Blaðsíða 11
V O R I Ð 105 Lars vissi hvað hann ætlaði að verða, þegar liann yrði stór. „Eg Ætla að verða verkfræðingur, véla- verkfræðingur,“ sagði liann. En það var nú hægará sagt en gjört. Það urðu því einlrver liin iyrstu og mestu vonbrigði lífsins, þegar faðir ltans sagði honum, að það gæti ekki komið til mála. Slíkt nám væri svo dýrt, að hann treysti sér ekki til að kosta það. Hann lét í því sambandi orð falla um, að liann gati ef til vill fengið að læra járn- snn'ði, ef hann kærði sig um. Hann kvaðst skyldu færa það í tal við járnsmiðinn niðri í þorpinu. Við það sat. Og daginn eftir ferminguna mætti liann sem lær- lin gttr Iijá járnsmiðnum, Gregorí- nsi Níelssyni, sem fékkst meðal annars við að gera við reiðhiól og bíla. Og Lars tók þarna til óspilltra vnálanna og var bæði kappsamur og verklaginn, svo að húsbóndi lians örosti í kampinn, þegar hann sá Lars vera að fást við gamla hluti úr veiðhjóli eða skrúfa sundur vélar að setja þær saman aftrtr, á meðan öann raulaði eða blístraði fjörlegt lag. En Lars dreymdi daga og nætur l*m menntaskóla og vélaverkfræði, °g á kvöldin las hann bækur um alls konar uppgötvanir og teiknaði myndir af þeim. Ollum þótti vænt um Lars vegna þess, hve hann var glaðlyndur og hjálpfús. Hann hjó stundum stór- an hlaða af eldivið fyrir konu smiðsins, án þess að hann væri beð- inn þess, og alltaf kom hann geit- inni hennar mömmu sinnar út í liaga, áður en hann fór til vinnu sinnar á morgnana. Og ef einhver þurfti hjálpar við, var hann reiðu- búinn til að leggja þar fram lið sitt. Jafnvel gamla konan, hún Metta Katrín, sem bjó í kofa utarlega í þorpinu, og ekki þótti alltaf blíð á manninn, var góð vinkona hans.’ Sú vinátta hófst með því, að Lars iiafði dag nokkurn bjargað kettin- um hennar úr klónum á óðum hundi. Og þó að sjaldan sæist bros á andliti Mettu Katrínar, hafði þó legið nærri að hún brosti mildilega, þegar luin rétti Lars epli í björgun- arlaun. En frá þessari stundu gerði Lars oft handarvik fyrir gömlu kon- una. Bar fyrir liana böggla i'ir kaup- félaginu, hélt á mjólkurfötunni hennar frá samlaginu og margt fleira. Og andlitið á Mettu Katrínu varð ætíð glaðara og bjartara, þegar Lars kom í heimsókn. „Hún er mesta nöldurskepna,“ sagði smiðurinn, „hún vill engan mann sjá og gerir ekki annað en að hýrast heima í kofanum og telja peningana sína.“ „Er hún mjög rík? spurði Lars. „Svo er sagt. Hún hefur verið ekkja í fjölda mörg ár, en þegar maðurinn hennar andaðist, seldi hún jörðina, því að um sama leyti missti hún einnig einkason sinn. Eg veit ekki hvaða ánægju slíkar

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.