Vorið - 01.12.1945, Qupperneq 14

Vorið - 01.12.1945, Qupperneq 14
108 V O R I Ð Ijós, er hún sótti eldivið um kvöld- ið. Það gekk greiðlega að komast inn um gluggann og inn í stofuna. En þar var allt fullt af reyk, svo að lion- um iá við köfnun. Og Lars fannst allt í einu að hann vera að missa vit- ið af skelfingu. Hvernig átti nokkur maður að geta andað Jiérna inni? En ef svo slcyldi vera, að Metta Kat- rín væri hér, væri þá nokkur von um að liún héldi enn lífi? Hann fálmaði sig áfram í myrkri og reyk meðfram veggjunum. Allt í einu rak hann sig á eitthvað og var nærri dottinn, en náði þó taki á einliverju, sem reyndist að vera rúmstuðull. Hann var nú ekki seinn á sér að þreifa fyrir sér og fann að vörmu spori Jiandlegg, sem lá ofan á sæng- inni. Lars tók þétt í liann og kallaði: „Metta Katrín! Þú verður að vakna. Metta Katrín! Metta Katrín!“ Hann heyrði nú eittlivað, sem líktist geispa, og konan, sem Iiann liafði reist upp til hálfs, lireyfði sig nú eins og liún ætlaði að leggjast út af á ný og koma sér lietur fyrir. En guði sé lof! Hún var þó Jifandi. Það var slæmt, að Iiann skyldi ekki geta vakið hana. Hann kallaði enn af öllum mætti, og í dauðans angist. Hann heyrði snarkið í eldinum allt í kringum sig. Hann gat ekki vakið hana. Þá var aðeins um eitt að velja. Hann varð að reyna að hera liana út um glugg- ann. Lars reil’ ofan af henni sængina og tók hina gömlu, sofandi konu í fang sitt. Hann fann, að hún var alls ekki þung, og auk þess hafði hann talsverða krafta í kögglum, þótt ungur væri. Hann lann þó, að svitinn draup niður ennið. Og hann fann, að hann var að missa andann af svæl- unni. Hann kiknaði í hnjáliðunum og það var eins og höfuð hans væri að rifna. Hann hentist út að glugganum og tókst með naumindum að koma gömlu konunni upp í karminn. En þá var honum öllum lokið. Það var eins og einhver stór liönd lokaði bæði munni hans og nefi. Hann gat ekki andað lengur, en féll með- vitundarlaus á gólfið. Lars hafði það einhvern veginn óljóst á meðvitundinni, að verið væri að kaffæra hann. Hann heyrði einhverjar raddir, sem hann gat þó ekki gert sér neina nánari grein fyrir. „Þetta er nú að verða nóg, hættið nú. Hann er nú að fá meðvitund- ina.“ Þetta var smiðurinn, sem var að tala. Lars þreifaði með höndunum upp að andlitinu og fann að hann var allur rennandi votur. Hann ojmaði augun og leit í kringum sig. Þeir höfðu lagt hann framan við kofadyrnar og hann sá í flöktandi

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.