Vorið - 01.12.1945, Page 18
112
VORIÐ
ÁLFURINN í
SKÓL ASTOF U NNI
(Endursögn nr dönsku).
Jón litli kom hlaupandi eítir veg-
inum; hann var að verða o£ seinn
í skólann. Hann liafði hvorki mátt
vera að því að þvo sér eða borða.
Mamma hans smurði stóra brauð-
sneið með smjöri og rúllupylsu og
lét í lítinn blikkkassa. Því næst
stakk hún kassanum í töskuna ltans.
Jón litli slengdi töskunni á bak
sér, en hann mátti ekki vera að
því að loka henni, svo að lokið
barðist og dinglaði til og frá, þegar
liann hljóp. En niðri í töskunni
dansaði blikkkassinn hopsa og ræl
við pennastokkinn, en lesbókin og
reikningsbókin flugust á, þangað
til þær voru báðar rifnar upp úr
kjölnum og grétu sáran.
En drengurinn tók ekki eftir
neinu. Hann hugsaði aðeins um að
komast í skólann, áður en hringt
væri inn. Hlunk, dunk, hlunk,
heyrðist, þegar þung stígvélin hans
skullu á grjótinu. Tripp, trapp!
Tripp, trapp! heyrðist ótt og títt
æðispöl á eftir Jóni.
Þar var svolítill álfur á ferð.
Hann var í grænum buxum og með
rauða skotthúfu. Hann var mesti
prakkari, og þegar liann sá dreng-
inn með opna skólatösku á bakinu,
datt honum í iiug, að réttast væri
nú að reyna að komast í töskuna
og láta strák bera sig. Strákur hljóp
og álfurinn bljóp. Loksins beygði
strákur út af veginum, því að Jiann
hafði ekki tíma til að fara í gegnum
hliðið, héldur klifraði yfir girðing-
una. Þá sá álfur sér leik á borði og
stökk ofan í töskuna, en drengur
tók ekki eftir neinu.
„Hér er góð lykt,“ sagði álfurinn
og saug upp í nefið. Fljótlega fann
hann brauðið með rúllupylsunni.
Hann borðaði það í snatri, henti
síðan kassanum út, en honum
fannst ennþá þröngt um sig, og
lieygði því pennastokknum út og
síðan bókunum og öllu dótinu.
Allt skall það í forina og hljóðaði
uni leið og það datt, en drengur
varð einskis var.
Loksins komst hann í skólann.
Hann tróð sér inn á ganginn með
töskuna sína, skaut henni inn í
stofuna, hentist síðan í röðina sína
á seinasta augnabliki og var hinn
ánægðasti með sjálfan sig. En álfur-
inn var líka ánægður með lífið, því
að þetta var reglulegt ævintýri.
Hann stökk upp úr töskunni, faldi
sig á bak við ofninn og beið. Þegar