Vorið - 01.12.1945, Qupperneq 20
114
V O R I D
Iðrunartárin
— Helgisögn frd miðöldum. —
Á stjórnarárum Mauritíusar
keisara lifði í Rómaríki ræningi
einn svo grimmur og vonclur, að
hann sýndi engri lifandi veru
nokkra sarnúð og fór hvorki að
guðs eða manna lögum.
Hann hafði um sig flokk manna
og bjó um sig á fjalli einu, en þaðan
fór hann til rána og manndrápa út
um byggðir landsins. Sá, sem neit-
aði að greiða honum skatt, mátti
búast við því, að hús hans yfði
brennt til kaldra kola næstu nótt og
hann sjálfur tekinn af lífi. Loks
sneri þjóðin sér til hins volduga
keisara og bað hann um vernd.
Hann sendi eitt hundrað hermenn
af stað, en flestir þeirra féllu í við-
ureigninni við ræningjana, og þeir,
sem aftur komu, fullyrtu, að ræn-
ingjarnir stæðu í sambandi við illa
anda. Og nú fór almenningur að
trúa því, að þeir væru ósigrandi.
Þegar keisarinn fékk þessar fregnir,
varð hann alvarlegur á svip og gekk
lengi og þungt hugsandi um gólf í
lega. Jón litli lagði af stað með álf-
inn á bakinu. Álfurinn barðist um
í töskunni og reyndi að komast út.
Hann hrópaði á hjálp og bað Jón
að sleppa sér. Jón litli anzaði lion-
um engu. Skyndilega datt allt í
dúnalogn.
„Nú, hann er náttúrlega dauður,
ræfillinn," hugsaði Jón. „Það var
gott, þá er ekki hætt við, að ég missi
hann, þegar ég opna töskuna.“
Álfurinn bærði ekki á sér.
Loks kom Jón að tjörninni.
Hann opnaði töskuna varlega.
Álfurinn var víst dauður, sem bet-
ur fór.
En þegar minnst varði, spratt álf-
urinn upp og hljóp inn í skóginn.
Álfur hljóp og strákur hljóp. Álfur
komst upp í tré og klifraði upp á
hæstu og mjóstu greinina í trjá-
toppinum. Þar sat hann og hló.
„Þetta var svei mér skemmtilegt
ævintýri," sagði állurinn. „Ég skal
einhvern tíma launa ykkur lambið
gráa, og þá skuluð þið ekki einu
sinni ná í skottið á húfunni minni.“
Drengur varð að snauta heim við
svo búið.
Það er sagt, að álíurinn efni heit
sitt og heimsæki skólabörn annað
slagið. Þess vegna er bezt að vera
vel á verði. En hann kvað fara svo
varlega, að síðan hefur enginn séð
hann, hvað þá náð í skottið á húf-
unni hans.
Sigríður Skaftadóttir
endursagði.