Vorið - 01.12.1945, Qupperneq 24

Vorið - 01.12.1945, Qupperneq 24
V O R I Ð HALLDÓR Þ. [ÓNSSON: Á ferð í stórhríð Það er farið að líða að jólum. Börnin í Hvammi geta ekki um annað talað eða hugsað en hvað þau muni fá í jólagjafir. Sum búast við að fá spil, eða einhverja fallega bók, telpurnar eru vissar um, að þær muni fá stórar og fallegar brúður, og geta þær ekki um annað talað en hvernig kjóla þær ættu að sauma handa þeim. Kári er sá eini, sem tekur ekki Jrátt í þessum sam- ræðum. Hann er þeirra elztur, 14 ára gamall, og otðinn svo viti bor- inn, að hann skilur, hvað fátækt er. Hjónin í Hvamrni eru mjög fá- tæk og eiga mörg börn, öll innan við fermingu og áttu foreldrarnir meira en nóg með að sjá öllum hópnum fyrir mat og fatnaði. Kári er orðinn stór og sterkur og farinn að geta hjálpað föður sínum við skepnuhirðinguna. Á aðfangadagsmorgun var hríðar- útlit, en þó stillt veður. Árni í Hvammi, en svo hét faðir barn- anna, ætlaði í kaupstaðinn, en banq-að voru urn 20 kílómetrar og yfir holt, móa og mýrar að fara, og ekkert til að átta sig eftir, nema óljósir götutroðningar. Árni ætlaði að kaupa matvöru og kannske einhverja smáglaðningu handa börnunum, ef kaupmaður- inn vildi lána honum það, þar til hann væri fær um að borga það. Árni fór gangandi, því að færi var sæmilegt. Gekk honum vel á leið- inni og kom snemma í kaupstað- inn, en þegar þangað kom, var dá- lítið farið að snjóa og allt útlit fyr- ir, að ganga mundi í stórhríð með kvöldinu. Árni rak því erindi sitt eins fljótt og hann gat. Kaupmað- urinn var fús á að lána honum, jrví að hann stóð ætíð vel í skilum, þeg- ar hann gat. Hann keypti því ýmis- legt smádót handa konu sinni og börnum.

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.