Vorið - 01.12.1945, Page 32
126
V O R I Ð
kaf, en kemur vonum fyrr upp aft-
ur, en sekkur aftur, þar sem hann
er ósyndur. Þegar Óli sér, að Arni
getur ekki haldið sér uppi, tekur
hann af sér skautana, stingur sér í
vökina og nær í Arna. Er Iiann þá
meðvitundarlaus. Oli kemst með
liann að vakarbrúninni, og börnin,
sem höfðu þyrp/t að vökinni, draga
þá upp úr.
Oli reynir strax að gera á Árna
lífgunartilraunir, og þegar lionum
hefur teki/.t að lífga liann við, kem-
ur Nonni og tveir menn með hon-
um með sleða. Hafði Nonni farið
að sækja hjálp, þegar hann sá.
hvernig ástatt var.
Er strax farið með Árna Jieim
til lians og liann háttaður ofan í
rúm. Hresstist liann fljótlega, og
mæltist til sátta við Ola og Nonna,
og urðu þeir fúsir til þess. Eftir
þetta urðu þessir þrír drengir góð-
ir vinir.
Lýkur svo þessari sögu.
Einar Þór Þorsteinsson.
Þegar kálfurinn týndist
Einu sinni átti pablri kvígukálf,
en sá löstur var á honunr, að hann
var svo sólginn í að éta föt. Meira
að segja höfðum við systkinin ekki
frið til þess að fara í sólbað, því að
þó sóttist kálfurinn eftir að ná í
fötin okkar, hlaupa burt með þau
og éta þau.
Einu sinni, þegar við fórum að
sækja kýrnar, sáum við hvergi kálf-
inn, en rákum samt'kýrnar á stöð-
ulinn og sögðum frá því lieirna, að
kálfinn vantaði.
Fólkið var nú kornið iieim af
engjunum og fór strax að leita með
okkur. Guðrún kaupakona fór
fram í Gerði að leita þar, og lirærði
upp í öllum pyttum. Loks þóttist
hún hafði fundið hann dauðan
niðri í einum pyttinum, en þegar
til kom, var jrað ekki annað en
steinn. Við leituðum nú lengi, en
árangnrslaust. Þá hættum við og
lórmn að sofa, enda var klukkan
orðin tól'f.
En um morguninn, jregar pabbi
kom út, var það hið fyrsta senr hann
sá, að kálfurinn lá mitt á meðal
kúnna og var hinn rólegasti. En
seinna fréttum við, að hann lrefði
rásað austur að jrvottalæknum á
næsta bæ, en þar var nýbúið að þvo
þvott, og var þvotturinn í stafla á
lækjarbakkanum. Kálfinum fannst
hátíð að komast í þvottinn og gerði
sér lítið fyrir og át tvc> sængurver
og eitt koddaver, og svo var hann
rólegur við það, að hann kom ekki
heim um kvöldið.
Arndis Erlingsdóttir, 11 ára,
Galtastöðum, Flóa.
Kennarinn: „Hvaða dýr er nytsamast,
Pétur?"
Pétur: „Það er hænan.“
Kennarinn: „Hvers vegna álítur þú
það?“
Pétur: „Jú, vegna þess, að það er hægt
að borða hana áður en hún fæðist, og
líka eftir, að hún er dauð.“