Vorið - 01.06.1973, Page 20
IþróHir og leikir
SAMKVÆMISLEIKIR FYRIR BORN
Á ÖLLUM ALDRI.
Umsjón; Júlíus Arnarson
POEMÁLI
Samkvæmisleikir eru ekki nýjir af nálinni.
Áður fyrr, er ísland var bændaþjóðfólag voru
þeir leiknir mikið við hin ymsu tækifæri, t.d. á
kvöldvökum, í afmælum, í töðugjöldum, og þegar
góða gesti bar að garði.
Því miður liefur þessi starfsemi lagzt svo til
alveg niður síðustu árin, vegna fjölmiðla og mik-
illar vinnu, sem hefur tekið æ meira af frístund-
um fólks. Grátlegt er að horfa upp á fjölmenn
barnasamkvæmi leysast upp í áflogum, þegar liægt
er að hafa ofan af fyrir þeim í skemmtilegum og
skipulögðum leikjum.
Nú er rétti tíminn til að endurvekja þessa
gömlu og góðu leiki og kenna börnum og ungling-
um að leika sér í nútíma samkvæmum, útilegum,
íþrótta- og ungmennabúðum og á félaga- og skóla-
skemmtunum.
Og til að fylgja þessum orðum eftir koma liér
nokkrir einfaldir og skommtilegir leikir, sem þó
eru þroskandi. Það er sameiginlegt þessum leikj-
um, að það þarf engin áhöld við þá og þá er
hægt að leika úti jafnt sem inni.
1. LEIKUR.
Að benda á tunglið.
Stjórnandi fær 2—3 til að taka þátt í
leiknum. Bundið er fyrir augu á 1. þátt-
takanda og hann látinn ganga með beinan
handlegg og beinan fingur að ákveðnum
bletti eða punkti á næsta vegg. Því næst
gengur stjórnandi eða aðstoðarmaður
fram fyrir þátttakanda og bítur í fingur
hans eða þá að fingri hans er stungið í
appelsínu eða sítrónu. Þetta er svo endur-
tekið við aðra þátttakendur.
Til þess að þátttakendur grmii síður
hvað sé í aðsigi er ágætt að lofa þeim að
reyna sig við blettinn án þess að hafa
bundið fyrir augun.
2. LEIKUR.
Að biðja Allah
Stjórnandi krýpur á teppi og fellur
fram fyrir sig og fórnar höndum á víxl,
eins og sannur Múhameðstrúarmaður ger-
ir, þegar hann biður bænir. Um leið er
farið með eftirfarandi þulu: „Allali, Allah
gefðu mér úlfalda“. Þegar hann liefur
endurtekið þetta nokkrum sinnum, og eng-
inn úlfaldi lætur sjá sig, þá fær hann lán-
aða tvo aðstoðarmenn úr liópi áhorfenda
til að biðja með sér. Þegar þeir hafa svo
endurtekið bænina nokkrum sinnum og
hvorki gengur né rekur með iilfaldann, þá
stendur stjórnandi upp dapur í bragði og
segir: „Allah, Allah, þrátt fyrir að þú hef-
ur ekki bænheyrt mig, þá þakka ég þér
kærlega fyrir þessa tvo asna, sem þú hefur
eftirlátið mér, og bendir á aðstoðarmenn-
ina.
20
VORIÖ