Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1914, Blaðsíða 12

Bjarmi - 01.01.1914, Blaðsíða 12
10 BJARMI guðsríki, þá óskaði eg oft: Guð gefi að bræður mínir fengju að sjá eitt- hvað svipað þessu, því að þá mundi vakna ný slarfslöngun og nýtt líf fæðast víðsvegar á Iandi voru. Hvenær kemur sú tíð, er trúaðir menn og konur safnast saman hér á landi, halda fund á fögrum stað nokkra daga til sameiginlegrar styrk- ingar og trúarhvatningar? Hvenær rennur sú stund upp, er leiðtogar þjóðar vorrar stjórna slíkum fundum? (Frh.) Auður og fégirnd. Auðurinn er valtastur vina liér á jörðu óg smæsta gjöfin, sem Guð getur gefið nokkrum manni. Hvað er hann í samanburði við orð Guðs? Og hvað er hann, meira að segia, í samanburði *við líkamlegar gjafir, svo sem fegurð og heilbrigði, og hvað er hann á móti andlegum gjöfum, svo sem góðri greind og speki. En þrátt fyrir það sækjast menn svo ákaflega eftir auðnum og láta sér ekkert stril né hættu í augum vaxa til þess að ná í hann. Þeir hugsa ekki um ann- að dag og nótt en að safna sér svo miklu af gulli og gróða sem framast er unt og geta aldrei verið í rónni. Þess vegna er það, að Guð gefur auðinn venjulega þeim heimskingium, sem hann ann engra annara gæða. * * * Auðurinn hefir tvo eiginleika. Ann- ar er sá, að hann gerir oss andvara- lausa, þegar vel gengur, svo að vér lifum án guðsótla. Hinn er sá, að á reynslunnar degi, þegar oss gengur illa, þá kemur hann oss til að freista Guðs, forðast hann og leila athvarfs hjá öðrum guðum. * A Fégirndin er viðurstygð Drotni vor- um; enginn löstur er fagnaðarerindinu til meiri fyrirstöðu og bakar kristn- um mönnum meira tjón. Þó sjáum vér, að allur heimur er saurgaður af þessum lesti. Menn hugsa ekki um annað nótt og dag en að afla sér matar, drykkja og fata. En það, sem einkum magnar þann löst, er það, að enginn vill láta sér nægja það, sem Guð úthlutar honum; allir vilja vera meiri og hafa meira; ef Guð hefir gefið einhverjum fallegt hús, þá vill hann eignast höll; sá, sem á höll, vildi helzt eignast heila borg o. s. frv. Lúther. Barnabæn. Lýs þú mér á lífsins vegi, lausnari minn, á nótt og degi; gefa vil eg þér, góði herra, gjörvallir fyr en kraftar þverra, æsku mína og alt mitt líf, svo undir gangi eg þinni hlíf. Auk mér krafta, auk mér trú, einn það, minn Jesú, getur þú; alt mitt líf sé í umsjón þinni, alt fram að dauðastundu minni; leiddu mig þá í lífsins borg, leystu mig þá frá allri sorg. * ■* ¥ Styrk mína hönd, svo liún megi vinna, þér, herra kær, til lofs og dýrðar hér; lát hjartað æ til ástar þinnar finna, af insla grunni lofgjörð flytja þér. Höfuð mitt lát þú hugsa alt hið bezta, er, herra, þér til dýrðar verða má; lunga mín þér trygð æ sýni mesta og tali illu jafnan sneiði hjá.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.