Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1914, Blaðsíða 13

Bjarmi - 01.01.1914, Blaðsíða 13
BJARMI 11 Eijrað mitt, Jesú, ætíð gott lát heyra, og aldrei lygi og baktal hlusta á; augað mitt — já, ætíð fleira og fleira af ástarverkum þínum láltu sjá. Stýr mínum fœii fram á réttum vegi og fjarlægjast mig aldrei láttu þér, og loks að entum æíi minnar degi eilífa dýrðarvist þá gefðu mér. (J. B.l Gegnum krossinn, (•Eftir Tliéodore Monod). Eg hefl stundum óskað mór þess, að eg ætti mér sérstakt bænarherbergi, og að á því væri að eins einn gluggi, og sá gluggi væri í múrnum í Jcrosslíki. Þessi krossgluggi ætti svo að minna mig syndugan á fyrirgefningu, áhyggju- fullan á Ijós og fulltingi, breyzkan á sigur, sorgmæddan á huggun, glaðan á þakklátsemi og angistarfullan á eilífa von. En þegar „dregur upp skýflóka og dimmir í geimi", og óveðrið er í að- sigi, þá ætti sortinn, sem eg þá sé í gegn um krossinn, að minna mig á annað myrkur, sem var svo miklu svartara, myrkrið, sem frelsari vor varð að reyna á krossinum. Alt, sem þá bæri fyrir augu mér, ætti þá að birtast mér í krosslíki : rósfagur morgunroðinn, geislaglóð há- degissólarinnar, puipurablæja sígandi sólar, tunglsljósið skæra og skin blík- andi stjarna, og boða mér auðlegð skaparans og náð frelsarans. Ekkert i heiminum fyrir utan mig, ekkert af hinum sýnilegu hlutum, gæti þá borið mér fyrir augu, nema — gegn um krossinn. Bræður minir! Eg þarf ekki að fá mér neinn húsameistara, til þess að koma upp og eignast svona lagað bænar- herbergi. Hver og einn getur átt það í hjarta sínu, og leitað sér þar athvarfs. í hvert skifti sem vór krjúpum fyrir frelsara vorum, og einkanlega þegar vér stöndum upp frá bæninni, þá skulum vér biðja þess, að alt, sem hann lætur falla í hlut vorn, birtist oss í gegn um krorsinn, hvort sem það er gleði eða sorg, starf eða þjáning, andlegt eða iikamlegt. Með þessu móti mun alt, sem Guð úthlutar oss, tímanlegt sem eilíft, verða oss til blessunar, og þá gengur það alt gegn um krossinn. Og hins vegar mun þá alt, sem frá vorri hálfu kemur, verða til blessunar, og Guði föður vorum og drotni Jesú Kristi til dýrðar. Kyrkjusöngur Mótmælenda. Lúther er með réttu talinn frum- kvöðull hins lútherska kyrkjusöngs. Eins og kunnugt er, þá var sönglistin yndi hans og eftirlæti, og enginn skildi betur en* hann, hversu mikilsvarðandi það væri, að reglubundinn safnaðar- söngur yrði einn þáttur hverrar guðs- þjónustu í kyrkjunum. En samt sem áður er það misskiln- ingur, að Lúther hafi vísað kórsöngn- um latneska algerlega á bug. Þvert á móti. Hann elskaði hann og virti, og lét hann halda sér í messugjöiðinni, eins og framast varð við komið. En handa söfnuðinum bjó hann út. ný sálmalög; voru það sumpart gömul latnesk kyrkjulög, en sumpart þjóðlög. Mörg af þeim lögum hafa lengi verið eignuð Lúther sjálfum; en nú telja menn fengna fulla vissu fyrir því, að hann hafi einungis valið þau og breytt eða látið breyta þeim eftir því, sem honum þótti bezt við eiga. Þeir Jó- hann Walter og Ludvig Seufle voru

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.