Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1914, Blaðsíða 16

Bjarmi - 01.01.1914, Blaðsíða 16
14 B JARMI kr. handa fátækum, og Kristilegt fólag ungra kvenna safnaði fötum handa fá- tækum börnum og útbýtti þeim á 49 heimilum. Enn fremur er framkvæmdarnefnd Umdæmisstúkunnar nr. 1, að safna gjöf- um, til að geta komið á matgjöfum ti) fátæklinga í janúar og febrúar líkt og tíðkast víða í erlendum borgum og nefnt er þar „Samverjastarflð". í aðalum- sjónarnefnd þess eru: Sigurbjörn Á. Gíslason (u. æ. t.) formaður, Páll Jóns- son verslunarmaður (u. g. k.) bókari og Flosi Sigurðsson trósmiður (u. g.)gjaldkeri. Nokkrar gjafir eru þegar komnar, þótt mikið vanti enn þá.------Margir gleðjast yflr öllu þessu og þykir það bera vott um vaxandi mannkærleika,— en aðrir kvíða því, að góðgerðasemin verði til að auka leti og draga hingað fleiri fátæklinga, og er þó ótrúlegt að nokkur ímyndi sér, að örvasa gamal- menni eða bláfátæk fjölskylda bjargist lengi við 3 til 5 kr. jólagjöf, þótt við bættist ein máltið á dag í fáeinar vikur. Þeir hafa ekki frá miklu að hverfa, sem láta það koma sér til að flytjast til Reykjavíkur! — Yel má vera, að einhverjum hefði þótt það öruggara ráð gegn sulti og kulda, að bera út börn fátækra og gamalmenni eins og stund- um var gripið til í heiðnum sið. — — En enginn hefir þó stungið upp á því. Ei'lendis. Drottningin á Hollandi var nýlega í París og sýndi það þá og þar, að hún heflr einurð til að játa opinberJega trú sína á Jesúm Krist. Hún á ætt sína að rekja til hins fræga Coligny, sem myrtur var í „blóð- baðinu" í París árið 1572, og hún lagði nú blómsveig á standmynd hans í París. Yið þetta tækifæri ávarpaði drotningin þá, sem viðstaddir voru, og sagði meðal annars: „Ó, hve það er fögur hugsun, að vór vitum oss öll eitt í lifandi trú á Jesúm Krist. Þessi trú gefur oss rétt til að kalla oss andleg börn forfeðra vorra, þeirra er vér berum djúpa lotningu fyrir; og þessi trú myndar sterkt band, sem tengir mig við bræður mína og systur mínar í þessu landi. Vér, sem nú erum stödd hér við standmynd þessa, skulum lyfta hjörtum vorum til Guðs, og leita dýrðar hans. Eg óska þess af öllu hjarta mínu, að eflist og styrkist trú allra þeirra, sem trúa á Jesúm Krist sem frelsara sinn, og að kapp vort og áhugi í því að vitna um frelsarann vaxi æ meir og meir“. (Eftir „Krist. Ukebl.“.) Trúboð Norftmanna á Madagaskar, eyjunni stóru fyrir austan Afríku, hefir nú varað í 47 ár. Á þessu tímabili hafa alls verið þar 94 trúboðar frá Noregi, og 35 eru þar nú starfandi, en 24 eru dánir. 31 hafa hæt.t starflnu, vegna heilsuleysis flestir þeirra, eða fyrir elli sakir; 4 hafa hætt af öðrum á- stæðum. Yflr 30 af trúboðunum hafa sakir hinnar tíðu og stöðugu „hitasóttar" þar, eigi enst til að starfa þar lengur en frá 1—10 ár; fyrstu árin, meðan menn eru að venjast loftslaginu, er hitasóttin hættulegust. Það sýnir dásamlegan, kristilegan á- huga, hve þrautseigir Norðmenn eru, og hve mikið þeir leggja í sölurnar af lífl og íó, til þess að breiða út kristin- dóminn í landi, þar sem svona er skað- samleg vist fyrir heilsu og líf Norðar- landabúa. Yíðar er strjálbygt en á íslandi. Dietrickson byskup í Tromsö í Noregi kveðst hafa „vísiterað" 24 preslakölJ í byskupsdæmi sínu árið 1912, og auk þess vígt nokkrar kirkjur og heimsókt nokkrar útróðrastöðvar, til að halda

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.