Bjarmi - 01.01.1914, Qupperneq 15
B J A R M I
13
k
Úr ýmsum áttum.
Iieima.
Til sunnudagaskólanna dönsku
sendi eg 27. nóv. 900 myndir af ör-
æfajökli eftir málverki Ásgríms Jóns-
sonar, fullviss um góða aðstoð ísienskra
barna. Undir hverja mynd var prentað:
Öræfajökull, og þessi kveðjuorð: „Bör-
nene paa Island takker for „Jólakveðjan"
og hilser de danske Söndagsskolebörn
med Psalm. 46. 2.—3., Jes. 54. 10.,
Matt. 21. 18. —22.; III. Joh. 15. —
Gleðileg jól í Jesú nafni“. Útsending
myndanna um Danmörku fól eg sama
manni og í fyrra, Blomberg ferðafulltrúa
sunnudagaskólanna, en fáeinar sendi eg
beina leið og hefi þegar fengið þakkar-
bróf fyrir sumar þeirra, er sýna, að
Dönum líkar myndin vel. Fyrir mynd-
ina og nokkuð af útsendingunni hefi eg
þegar greitt samtals 513 kr. 89 aura.
Upp í það hefi eg veitt móttöku auk
178 kr. 13 aura eftirstöðva frá liðnu ári:
Frá sr. Gísla Kjartanssyni Sandfelli 8 kr.,
sr. Jóni Sveinssyni Akranesi 8 kr.,
vígslubiskup Valdimar Briem 5 kr., sr.
Þorvaldi Jakobssyni Sauðlauksdal 5 kr.,
sr. Magnúsi Andréssyni Gilsbakka 5 kr.,
sr. Einaii Palssyni Reykhoiti 5 kr., frá
börnum á Miðnesi (Siguibjörg Einars-
dóttir) 12 kr. 6 aura, börnum í Leiru
(Guðlaug Guðjónsdóttir) 3 kr., börnum
í Höfnum (Jón Jónsson) 5 kr. 19 aura,
sunnudagaskóiabörnum í Reykjavík 16
kr. 50 aur., barnaskólabörnum í Rvík
64 kr. 64 a., Landakotsskóla Rvik 10 kr.
— Kæra þakkir fyrir þessar góðu und-
irtektir og loforð þau, sem borist hafa,
en hór eru ótalin.
Um Sanðárkróksliraudið sækja sr.
Hálfdán Guðjónsson prófastur Breiða-
bóisstað, sr. Sigfús Jónsson Mælifelli og
sr. Björn Stefánsson, er þjónar brauðinu
i vetur fyrir sr. Árna Björnsson.
Fátækra samskot. í augum margra
íslendinga er Reykjavík fyrirheitna landið,
þangað keppast menn úr sveitunum „til
að njóta iifsins". En alt af vex þó tala
fátæklinga í höfuðstaðnum, og þrátt
fyrir alla góðgerðasemi þeirra, sem betur
mega, lifa margir við basl og bágindi
mikinn hluta vetrar. Og svo eru sveita-
þyngslin mikil, að árið 1912 var greitt
úr bæjarsjóði til fátækraframfæris innan-
bæjarmanna nál. 43 þúsund kr., og
utanbæjarmanna hálft ellefta þúsund kr.
— Það er enginn smáræðis baggi á
þeim, sem geta borgað útsvör. — —
Þrátt fyrir fagrar vonir ókunnugra, góð-
vild örlátra og sveitastyrk, býr margur
við þröngan kost, einkum í vetur, vegna
atvinnuleysis. Almenningi er það ljóst,
þvi að aldrei hefir verið gert eins mik-
ið til að gleðja fátæklinga um jólin
sem nú.---------Eg býst við, að ýmsir
hafi ýmist kent mér það eða þakkað
að Kristileg safnaðarstarfsemi tók upp
þá nýlundu fyrir 10 árum, að safna fé
meðal bæjarmanna, til að gleðja fá-
tæklinga fyrir jólin í nafni dómkirkju-
safnaðarins, voru listar bornir um bæinn
í því skyni og mæltist það misjafnlega
fyrir einkum hjá sumum þeim, sem
hæst tala um kærleikann. Samt safn-
aðist þá um 460 kr. — — Prestarnir
við dómkirkjuna tóku alveg að sér að
gangast fyrir þessum jólasamskotum
fyrir fám árum, og fara þau vaxandi
árlega og margir gefendur koma nú
með gjafir sinar að fyrra bragði, þót.t
listar séu ekki úr sögunni. í þetta sinn
voru gefnar rúmar 1070 kr. í pening-
um, 50 skippund kol og 1 tunna af
saltketi. Um 315 fátæklingar nutu gjaf-
anna.------Kvenfélag fríkirkjusafnaðar-
ins og frikirkjupresturinn gengust og fyrir
jólasamskotum í þetta sinn og urðu
þau um 630 kr. að meðtöldum 200 kr.
frá kvenfélagi fríkirkjunnar, og nutu
þeirra um 86 fjölskyldur. í jólapotta
Hjáipræðishersins safnaðist rúmar 266