Bjarmi - 01.07.1921, Qupperneq 6
126
B J ARMI
dönsku »Indvielse«. — í þetta sinn
voru 3 ungar stúlkur vígðar til þessa
fagra starfa af biskupnum af Stepney.
Það var margt fólk viðstatt og þar á
meðal nokkrir prestar, sumir þeirra
aðstoðuðu við atböfnina, sem fór
mjög hátíðlega fram.
Ensku diakonissurnar hafa leyfi til
þess að prjedika í kirkjum, skíra
börn og búa unglinga undir fermingu,
en þær hafa ekki leyfi til þess að
ferma, eða taka fólk til altaris.
Jeg heyrði gamlan þjóðkirkjuprest
enskan (dr. theol) segja, að sjer fynd-
ist það dæmalaus afturbaldssemi að
leyfa þeim ekki að gera öll prests-
verk. »Eins og gefur að skilja« sagði
hann, »fer þeim stöðugt fækkandi,
sem dirfast að neita því, að konur
skulu ekki, jafnt sem karlar, vera
hæfar til þess að boða fagnaðarerindi
Krists. Það er lítil kristileg auðmýkt
í því, að neita þeim að úthluta alt-
arissakramentinu, eins og þær sjeu
óhreinár — en vjer hreinir«.
Jeg heyrði talað um prest í Lund-
únum, sem er svo latur og áhuga-
laus, að hann kemur stundum ekki
til kirkju sinnar á sunnudögum, þólt
hann eigi að prjedika. Fólki er alveg
sama, það hirðir ekki um að klaga
hann, því diakonissan þar í sókninni
stígur þá í stólinn, og þykir fólki
mikið til koma að hlusta á hana.
Það eru tveir kvenprestar í Lund-
únum, að því er mjer var sagt, en
þær heyra ekki til þjóðkirkjunni.
Sá tími er vafalaust í nánd, að
kvenprestar fara að verða algengir,
jafnvel þótt bræður okkar í Noregi
álíti að það sje gagnstætl Guðs orði1).
1) Um það efni hefir mikið verið rælt
í Norvegi, og flestir biskuparnir og marg-
ir aðrir kirkjul. Ieiðtogar tjáð sig algjör-
lega andstæðir pví að konum væri veitt
prestsembætti. »Konur mega ekki prje-
dika« segja peir, en þeim er velkomið að
Það er mikið, á meðan þeir ekki
skipa okkur kvenfólkinu að ganga
með höfuðblæju, af því að Páll post-
uli skipaði kvennfólkinu í Korintu-
borg að gera það.
II. „China Inland Mission“.
Nálægl diakonissustofnuninni er
heimili kristniboðsfjelagsins, sem
kennir sig við upplönd Kínaveldis,
og þótti mjer harla fróðlegt að sjá
það. Núna sem stendur, hefir fjelag-
ið um 1000 kristniboða í Kína. Pað
voru 42 heima. Jeg talaði við tvo
kventrúboða, önnur þeirra hafði ver-
ið 18 ár í Kína, en hin 33. Jeg var
á bænafundi hjá Kínalrúboðunum,
sem jeg seint mun gleyma, — Les-
endur »Bjarma« hafa að sjálfsögðu
lesið um hinn nafnfræga stofnanda
þessa fjelags Hudson Taylor, og vita
að þetta inikla fjelag hefir ekkert við
að styðjast, nema frjáls samskot.
(Það biður Guð einan um fje, og
starfsmenn þess eru ekki ráðnir upp
á fast kaup).
III. K. F. U. K. og K. F. U. M.
Rjelt á móti »China Inland«, er
»Sekreteraskóli« K. F. U. K. og K. F.
U. M. — Ressi fjelög gera mikið gagn
og eru í miklu áliti á Englandi. Eng-
in þeirra hafa eins stóra byggingu
og K. F. U. K. í Khöfn, sem kvað
vera slærsla K. F. U. K. bygging í
Evrópu, en þar á móti hafa þau stór
fiytja kristileg erindi, bæöi i kirkjum og
öðrum samkomuhúsum«. Pað er varla
von, að kvenf'relsiskonur skilji hversvegna
þarf að gera svo mikinn greinarmun á
»prjedikunum« og »kristilegu erindi«. —
Hitt er annað mál, hvort ýmsar aðrar
ástæður verði því ekki valdandi, að það
hljóli jafnan að verða undantekning að
konur gegni presfsembættum, m. k. yrði
þeim það eríitt í Islenskum samsteypu-
prestaköllum, þótt lögin leyíi það.
Rilslj.