Bjarmi - 01.07.1921, Page 7
BJARMI
127
sumarheimili upp i sveit, sem eru
mikið stærri og veglegri, en sumar-
heimili K. F. U. K. á Norðurlöndum.
Jeg heimsótti eitt þeirra i gær »High
Ashurst« í Dorking, tæplega tveggja
líma ferð frá Lundúnum. Þegar jeg
kom dálítið út fyrir Dorkingbæ, sá
jeg hilla undir mikla höll á hárri
skógi vaxinni hæð. Jeg hjelt, að þetta
væri einhver herragarður, mjer datt
sist í hug, að þetta væri sumarheim-
ili K. F. U. K. Einhver fjarska rík
fjölskylda, hafði látið byggja þessa
höll og búið þar um hrið, síðan selt
húsið með allri búslóð til einhvers
vinar K. F. U. K., sem ekki vill láta
nafns síns getið. Þessi vinur gaf K.
F. U. K. í Lundúnum þetta lítilræði,
sem sjálfsagt er 2 miljóna kr. virði.
IV. Á meðal bindindisfólks.
Jeg flutti frá Diakonissustofnuninni
niður í miðja borg, af þvi, að mjer
var boðið að taka þátt í ársfundi
Hvitabandsins enska. Nokkrum dög-
um áður en Hvítabandsfundurinn
byrjaði, var jeg á miklum bindindis-
fundi í Westminster Hall. Þar töluðu
meðal annara lady Astor og frú
Lloyd George, kona forsætisráðherr-
ans. Lady Astor er sú fyrsta og ein-
asta kona, sem á sæti i parlament-
inu enska. Hún er ræðukona með
afbrigðum, orðsnör og fyndin. Hún
heíir áunnið sjer mikla virðingu síð-
an hún kom á þing. Daginn, sem jeg
hlustaði á hana í Westminster Hall,
hafði hún unnið svo frægan sigur í
parlamentinu, að fólk kallaði daginn
»Lady Astors dag« (það var föstu-
daginn 22. apríl). Svo var mál með
vexti, að á meðan á stríðinu stóð
hafði stjórnin takmarkað mjög sölu
á áfengi. Nú höfðu áfengisvinir i
parlamentinu komið fram með tillögu
um að afnema þessi ákvæði, sem
lakmörkuðu áfengissöluna. Sú tillaga
var kölluð »bruggarafrumvarpið«. —
Þann 22. apríl kom þetta frumvarp
til umræðu i parlamenlinu og var
rætt mikið um það, bæði með og á
móti. Rjett áður en átti að fara að
greiða atkvæði um það, bað lady
Astor sjer hljóðs og hjelt svo kröft-
uga ræðu á móti frumvarpinu, að
flytjendur þess þorðu ekki að láta
greiða atkvæði um það, en tóku það
aftur, og sögðust ætla að undirbúa
það betur. Jeg hefi ekki heyrt getið
um, að það hafi komið fram siðan.
Þessi fundur i Westminster Hall
mun mjer seint úr minni líða. Erki-
biskupinn af Westminster, stjórnaði
honum, hann hafði lordbiskupinn
af Croydon sjer til hjálpar. Áheyr-
endurnir skiftu þúsundum.
Fundurinn byrjaði með söng og
bæn. Siðan talaði frú Lloyd George
látlaust og alvarlega um ógæfu þá
sem leiddi af áfenginu, og tilfærði
ýms dæmi. Mjer leist mjög vel á
hana, en hún var engin afbrigða
ræðuskörungur.
Þá er lady Astor byrjaði ræðu
sína, hreif hún á vörmu spori alla
með sjer. Áheyrendurnir voru ekki
feimnir við að láta tilfinningar sinar
i Ijósi. Sumir mótmæltu henni og
ljet hún þá ekki standa á svari. Aðr-
ir Ijetu samhygð sina í ljósi með
lófaklappi.
Alt í einu hrópaði einhver maður
frá áheyrendabekkjunum. — »Það er
guðdómlegl að drekka sig fullan«. ■—
»Jeg vil ekki svara þessum manni
með eigin orðum«, sagði lady Astor,
en jeg vil lesa upp nokkur orð úr
heilagri ritningu. Og svo las hún
þessi orð úr Galatabrjefinu kap. 5,
18.— 22. »En verk holdsins eru aug-
ljós, og eru þau: frillulíf, óhreinleik-
ur, saurlífi, skurðgoðadýrkun, fjöl-
kyngi, fjandskapur, deilur, metningur,
bræði, sjerplægni, tvídrægni, flokka-