Bjarmi - 01.01.1976, Qupperneq 2
Tímabœr
viðvörun
Matt. 16,5-12.
Sjáið til og varið yður, eru orð
Jesú.
Hann er glöggur og gætinn við-
víkjandi kenningum lærimeistar-
anna í ísrael, tekur ekki allt gilt,
sem á borð er borið, hvaða lífs-
skoðun og trúarefni, sem vera skal,
heldur vegur vel orð, hugsun og
anda kenninganna, sér, hvert stefn-
ir og varar stranglega við öllu, sem
grípur um sig eins og súrdeig illsku
og vonzku.
Þetta er ekki okkur óviðkomandi,
því að enn er líf í gamla súrdeig-
inu, og lítið hefur dregið úr illum
og ófarsælum áhrifum þess.
Þú hefur eflaust orðið þess var,
hve þér hættir til að hugsa, tala
og lifa líkt og Saddúkearnir gerðu,
láta ginnast af löngun eftir yfir-
ráðum og auðæfum, seilast eftir að
ná í meira og meira, komast upp
fyrir aðra, sökkva þér niður í tak-
Frá starfinu
KSS á Aknreyri
Kristileg skólasamtök hafa verið
stofnuð á Akureyri. Síra Jón Dal-
bú Hróbjartsson, skólaprestur,
dvaldist á Akureyri vikutíma í
haust til þess að kanna, hvort unnt
vœri og œskilegt að koma á fót
KSS þar nyrðra. Segir í fréttablaði
KSS í Reykjavík, að Kristileg skóla-
samtök hafi síðan verið stofnuð á
Altureyri 10. október síðastliðinn.
Ragnar Gunnarsson, fyrrverandi
stjórnarmaður í KSS í Reykjavík,
var fulltrúi sunnanmanna við
stofnun félagsins ásamt síra Jóni.
Samtökin munu hafa náin tengsl
við félagið í Reykjavik. Stofnend-
ur voru alls fjórtán, og er for-
maður Jóhanna Sigurjónsdóttir,
menntaskólanemi. Leiðbeinandi
unga fólksins er Bjarni E. Guð-
leifsson, tilraunastjóri. Fundir eru
haldnir á föstudögum.
markalaus lífsgæði og gleyma hin-
um sönnu gæðum, ofala líkamann
og svelta sálina, missa tilfinning-
una fyrir því, sem er meira en fæð-
an og klæðin, göfga og dýrka
skepnuna í stað skaparans, sem er
blessaður að eilífu, og glata öllum
skilningi á því, að guðsótti sam-
fara nægjusemi er mikill ávinn-
ingur.
Þér dylst ekki heldur, að kenn-
ing Faríseanna hefur í sér fólgna
sömu ginningu. Þú sérð það ljós-
lega á samferðamanni þínum og
þú býsnast ekki lítið út af því, en
litist þú vel um hjá sjálfum þér,
finnur þú, að súrdeigið hefur etið
sig þar inn líka. Þú lætur ginnast
til þess að binda öðrum þungar
byrðar án þess að vilja hreyfá við
þeim sjálfur, álíta bróður þinn
villuráfandi og glataðan, en þig
sjálfan réttlátan, þykjast glöggur
á veilur náungans og vera alveg
óvitandi um kærleiksleysið í eigin
hugsunum, orðum og gjörðum,
þegja um velgjörðir annarra og
halda góðri tölu á þínum góðverk-
um, vera strangur við aðra og lin-
ur við sjálfan þig.
Viðvörun Jesú ætti að vera í góðu
gildi hjá okkur, við þörfnumst
hennar.
En hvernig tókst nú lærisveinun-
um að vara sig?
Án Jesú hefði aldrei orðið neitt
úr neinu hjá þeim. Það lá þeim
nærri að halda fast við það, sem
Sturfsmcnn SlK
Gunnar Sigurjónsson dvaldist I
Fœreyjum í boði Kirkjulega kristni-
boðsfélagsins dagana 11. október
til 6. nóvember s. 1. Er nánar sagt
frá því ferðalagi annars staðar í
blaðinu.
Benedikt Arnkelsson tók þátt í
haustmóti unglinga, sem KFUM og
K á Akureyri efndu til að venju um
fyrstu helgina í nóvember. Vikuna
2.—9. sama mánaðar voru haldnur
samkomur í kristniboðshúsinu Zíon
á Akureyri. Benedikt og Gunnar,
svo og Ingunn Gísladóttir, töluðu
á samkomunum og fluttu frœðslu
um kristniboðsstarfið i Eþíópíu.
Síðasta daginn var tekið á móti
gjöfum til kristniboðsins, og námu
þœr kr. 42.941. Gunnar og Benedikt
ferðuðust síðan til Ólafsfjarðar,
Siglufjarðar, Sauðárkróks og
Skagastrandar og héldu þar sam-
komur fyrir börn og fullorðna.
Kristniboðið var kynnt f unglmga-
þeir höfðu handa á milli, gleyma
velgjörðum Drottins. Þeir voru
seinir til að trú.a því, sem Guð sagði
þeim, skynjuðu ekki það, sem hans
var. En þeir héldu áfram að fylgja
Jesú og kölluðu hann meistara og
herra, og hann reyndist vera það
og varð þeim bæði líf og kenning.
í samfélaginu við hann gafst þeim
náð og styrkur til að hreinsa burt
súrdeigið.
Hvert viltu leita? Hver verður
þér til varnar og varðveizlu?
Víðs vegar að berast hrópin:
Okkur vantar Biblíur, kristniboða,
kirkjur. Enginn segir okkur frá
frelsaranum, enginn leiðbeinir
okkur.
Hvað vantar okkur? Er mikil
vöntun á Biblíum, kirkjum, sendi-
boðum í Krists stað?
Við getum varla sagt, að við sé-
um sett hjá.
Orð Krists er okkur boðað og
nálægt.
En hyer trúði því sem vér boð-
uðum?
Er líf í trúnni ? Er orðið þér kært
og ómissandi? Þar sérðu og heyr-
irðu Meistara þinn og Herra. Nær-
vera hans er þér vörn og styrkur
í góðri baráttu trúarinnar og trygg-
ir þér sigur.
Á þér sannast orðið: Mín gæði
eru það að vera nálægt Guði, ég
hef gjört Herrann Drottin að at-
hvarfi mínu.
Siguröur Þorsteinsson.
skólum á þessum stöBum, svo og
í barnaskólunum í Hegranesi, Mel-
gili og á Stóru-ökrum í Skagafiröi.
Veður var óvenju hagstœtt til
ferðalaga þennan tíma. Til kristni-
boðsins í Konsó söfnuðust alls kr.
140 þús. kr. í þessari ferð. Gunnar
íór svo til Vestmannaeyja í lok
nóvember og lagði þar lið starfi
KFUM og K um hálfsmánaðar
skeið.
Komin lieim
Valdís Magnúsdóttir, kennari,
kom heim til íslands frá Englandi
16. desember síðastliðinn. Hún
hafði verið við málanám í Lund-
únum í nokkra mánuöi, en í fyrra-
vetur gekk hún í kristniboðsskóla
á Fjellhaug í Osló, eins og kristni-
boðsvinum er kunnugt. Valdís verð-
ur í Húsmœðraskóla Reykjavíkur
fram á vorið, en síðar á þessu ári
er gert ráð fyrir, að hún haldi til
Eþíópíu, ef Guð lofar.
2