Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1976, Blaðsíða 11

Bjarmi - 01.01.1976, Blaðsíða 11
Billy Graham mun vera þekktasti prédikari, sem nú er uppi. „KrossferSir" hans eru kunnar víöa um lönd. Var hann slíkra erinda á Formósu 6 s.l. hausti, þar sem hann hélt nokkrar samkomur ó stórum íþróttavelli. Er taliö, að yfir 250.000 manns hafi komiS til að hlusta á prédikarann — þrátt fyrir úrhellisrigningu. Meðal samkomugesta var forsœtisráðherra landsins. 4000 manna kór söng á samkomunum. Safnað var fé til starfsins, og komu um 30 milljónir króna í samskot. 12.000 manns gáfu til kynna. að samkomum loknum, að þeir vildu gefast Guði. — Myndin er af Billy Graham. dreypa á víni. Páll skrifar Tímót- eusi: „Vertu ekki lengur að drekka vatn, heldur skalt þú neyta lítils eins af víni vegna magans og veik- inda þinna.“ Þú yrðir furðu lostinn, ef þú kæmist að raun um, hversu margt fólk hefur magakvilla og af- sakar sig með því. — En ástæðan til þess, að ég smakka ekki áfengi, er sú, að mér er Ijóst, að hér kem- ur fleira til greina. Biblían segir, að ég eigi ekki að gera neitt, sem geti valdið því, að bróðir minn hrasi. Ef fólk sæi mig sitja að sumbli, þá mundi það segja, að minnsta kosti í heimalandi mínu: „Nú, já, Billy Graham gerir það, þá hlýtur það að vera óhætt.“ Og þetta getur leitt til þess, að menn verði ofdrykkjumenn. Ég verð því að sýna gætni vegna vitnisburðar míns.“ Enginn gerir svo öllum líki. David Frost kveðst einmitt hafa hugsað á þessa lund. Hann minnist síðan á, að sumir finni að því, að Billy Graham búi á góðum hótel- um, þó að þeir gisti kannski sjálfir á sams konar hótelum. Billy Gra- ham svarar: „Já, ég verð að þola þess konar gagnrýni í Englandi, en ekki heima. Ef ég gisti á lúxushóteli hér, yrði agnúazt við því, en ég get gist á sams konar hóteli heima, án þess að sæta aðfinnslum, það er talið alveg eðlilegt. Nú bý ég ekki í höll. Ég hef ekki bíl með bílstjóra. Ég hef ekki ýmislegt það, sem biskup- ar og kardínálar hafa, til dæmis sæg af þjónum. En heima gisti ég á Holyday Inn hótelum, vegna þess að strax í byrjun starfs míns var mér boðin þarna, gisting og atlæti ókeypis, mér, fjölskyldu minni og vinum mínum, sem eru með mér. Ég bý því þarna alveg ókeypis. Asnar og önnur farartœki. Árið 1954 kom ég til Englands til þess að tala á Harringay Arena og Wembley Stadion. Þá var ég spurður á blaðamannafundi, hvers vegna ég ferðaðist ekki eins og Jesús, af hverju ég kæmi á þessu stóra og fallega lúxusskipi, Queen Mary. Ég svaraði: „Jesús ferðaðist á asna. Finnið handa mér asna, sem getur synt yfir Atlantshaf, og ég skal reyna að kaupa hann! Ég hef ekki enn fundið slíkan asna, svo að ég verð að halda áfram að nota skip og flugvélar“.“ Var Jesús á móti „kerfinu“? „Nú benda ýmsir á, að svo hafi virzt sem Jesús hafi verið á móti „kerfinu". Hann hafi verið fyrir utan „kerfið“ og að vissu leyti upp- reisnarmaður gegn „kerfinu". Þú ert góður vinur ýmissa þeiri’a manna, sem eru inni í „kerfinu“. Mér finnst ekkert athugavert við það, en hverju svarar þú fólki, sem segir, að þú eigir að vinna á móti „kerfinu", ekki sameinast því, held- ur vera eins og Jesús?“ „Við verðum að gera okkur grein fyrir, hvað það var, sem Jesús var á móti. Hann mælti ekki orð gegn Róm. Þó réð Róm yfir heiminum, þar á meðal föðurlandi hans. En hann var á móti hinu trúarlega kerfi, og hann talaði langmest um trúarleg atriði. Menn lögðu fyrir hann gildru og reyndu að fá hann til að segja, að hann væri með keisaranum eða á móti honum. Hann ræddi við þá um mynd keis- arans á peningum, og hann sagði: „Gjaldið keisaranum það, sem keis- arans er, og Guði það, sem Guðs er.“ Hann gerði þennan greinar- mun, og hann talaði aldrei á móti Róm. Kerfið, sem hann var and- vígur, var vont, spillt trúarkerfi, fullt af hræsni. Nú er ég töluvert stórorður, þegar ég finn að því, sem ég tel vera guðfræðilega eða siðferðilega spillingu, en hana er að finna sums staðar í kirkjunni. Ef ég fer til staðar, þar sem kirkj- an hefur ekki talað einarðlega í sambandi við kynþáttavandamálið, þá gagnrýni ég þá kirkju. Og ég finn, að ég er á móti þeim þætti trúkerfisins, vegna þess, að ég held, að það hafi verið þetta kerfi, sem olli kommúnistabyltingunni í Sovét- ríkjunum árið 1917. Trúkerfið var orðið svo bundið stjórnmálakerf- inu, og hvort tveggja kerfið var rotið, svo að fólkið vildi breytingu. Ég held, að við verðum að greina á milli trúarlega kerfisins og hins pólitíska. Jesús talaði aldrei á móti stjórnmálakerfinu, enda þótt það væri spillt. Það var eins og hann liti svo á, að það væri utan við dómssvið sitt.“ Framh. í nœsta blaöi. 11

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.