Bjarmi - 01.01.1979, Page 2
Mjög litlar upplýsingar berast úl uin kristna menn á meginlandi
Kína. Eftirfarandi viðtal er við unga, kínverska konu, sem hefur
flutzt úr landi, og þaíi sýnir, að heilagur andi er að verki í Kína.
Viðtalið er skrifað af Jonathan Chao, rektor við guðfræðideildina í
Hong Kong.
Guð hefur ekki
yfirgefið Kína
— í hvaða héraði áttir þú heima
í Kína?
— Ég átti heima í Chekiang
héraði.
— Hvað voru margir íbúar í
þorpinu þínu?
- Um það bil 1000.
— Hve margar fjölskyldur voru
þar?
— Um það bil 300.
— Eru nokkrir kristnir í þorp-
— Já, en aðeins sex fjölskyldur.
— En í nágrannabænum?
— Það eru nokkrir kristnir menn
í þorpi, sem er um það bil tvo kíló-
metra í burtu. í þorpi, sem er helm-
ingi lengra í burtu, eru margir
kristnir. í rauninni eru það um
það bil 30% af þeim 100 fjölskyld-
um, sem þar búa, sem eru kristnar.
— Hvemig vildi það til, að svo
margar fjölskyldur í þessu þorpi
frelsuðust?
— Það vorú tvær eða þrjár fjöl-
skyldur í bænum, sem voru óvenju-
lega duglegar að vinna fyrir Drott-
in. Þær voru raunverulega fúsar
til að fórna sér algjörlega í bæn
fyrir hinu fólkinu í þorpinu. Þær
hjálpuðu öllum, sem þörfnuðust
hjálpar þeirra. Þeir, sem ekki voru
kristnir, urðu gagnteknir af þessu.
Þeim fannst það hlyti að vera stór-
kostlegt að vera kristinn. Og þeir
fóru einnig að trúa á Drottin.
Önnur ástæðan er sú, að þar sem
hinir kristnu voru athafnasamir,
þar var djöfullinn einnig sérstak-
lega athafnasamur. Um tíma voru
það margir í þorpinu, sem hlutu
lækningu, og illir andar voru rekn-
ir út. Það er máttur í bænum hinna
kristnu.
— Ef einhver verður veikur og
hinir kristnu biðja fyrir honum,
verður hann þá heilbrigður?
— Já, yfirleitt, nema í nokkrum
tilfellum, þegar um þrálátan sjúk-
dóm er að ræða. En fólk, sem hald-
ið er illum öndum, læknast yfir-
leitt strax fyrir bæn. niu andarnir
flýja strax og hinir kristnu biðja.
Þetta er undursamlegt. Þú trúir
þessu ef til vill ekki, en ég hef ver-
ið vitni að því, að illir andar voru
reknir út.
— Hvaða áhrif hefur þetta haft
á meðal þeirra, sem ekki eru
kristnir?
— Sjálfsagt hafa þeir fengið það
á tilfinninguna, að það sé stórkost-
legt að vera kristinn. En kristnir
menn í Kína eru ekki viðurkennd-
ir í Kína. Þeir þurfa að þola of-
sóknir og þjáningar. Það eru marg-
ir, sem vilja ekki verða kristnir
sjálfir, en bera þó mikla virðingu
fyrir þeim, sem eru það. Aðeins
þeir, sem eru algjörlega hjálpar-
lausir og hcifa engin úrræði, koma
til hinna kristnu og biðja um fyrir-
bæn.
— Er eitthvað fleira, sem leiðir
til þess, að fólk frelsast?
— Annar mikilvægur þáttur er,
mu r
Orð GuSs hefur
ekki veriS fjötraS
í Kína, þrátt
fyrir hatramma
guSleysistefnu
stjórnvalda.
— Myndin sýnir
ungar stúlkur á
götu í Peking.
2