Bjarmi - 01.01.1979, Blaðsíða 8
Nýr akur. nýr heimur
Kitale, 1. janúar 1979.
Kæru kristniboðsvinir.
Við höfum ekki látið mikið frá
okkur heyra, eftir að við komum
hingað til Kenýu. Það eru ástæður
fyrir því, sem ég ætla ekki að rekja
hér. Við þökkum af hjarta fyrir-
bæn og samstöðu í starfi.
Ykkur er kunnugt um, að það
er ekki auðvelt að eiga að byrja
nýtt starf í nýju landi og við ókunn
skilyrði. Margt var öðruvísi en við
höfðum búizt við, en Drottinn hef-
ur verið með okkur og gefið ráð
og styrk og opnað dyr til starfa.
Það er nýr akur, nýr heimur, sem
okkur er lítt kunnur og ykkur enn
síður, en Drottinn þekkir hverja
sál, sem þar býr. Fólkið þar á móti
þekkir hann ekki. Það er neyð
þess.
Um þessi áramót hefur orðið í
Jóh. 15 um vínviðinn og vínyrkj-
ann talað til mín. Mig langar að
nefna þrjú atriði:
Jónas Þórisson skrifar í einka-
bréfi 11. nóv. frá Arba Minch:
Ég vil byrja á því að þakka fyrir
kærkomið bréf. Það gleður okkur
alltaf að fá fréttir af starfinu og
vinunum heima. Við minnumst
með þakklæti vinarhugs og hlýju
kristniboðsvina þá mánuði, er við
dvöldum heima, og gleðjumst yfir
góðum fréttum.
En það eru ekki aðeins góðar
fréttir, sem okkur hafa borizt síð-
ustu vikumar. Þær hörmulegu
fréttir, að Ásgeir Pétursson hafði
látizt í flugslysinu á Sri Lanka,
1. Vínyrkinn sníður af grein-
amar, sem ekki bera ávöxt. Þær
eru gagnslausar og aðeins til hindr-
unar.
2. Greinar, sem bera ávöxt,
hreinsar hann, svo að þær beri
meiri ávöxt.
3. Þeir, sem hreinir eru, eru það
vegna orðsins, sem Jesús talaði til
þeirra.
Ég hef þurft að spyrja sjálfan
mig: Hvar stend ég í þessu sam-
hengi ?
Drottinn hefur opnað okkur dyr
til Pokot-fólksins í Kenýu. Þar er
ekki allt eins ákjósanlegt og við
hefðum viljað. En hér er ekki
spurning um, hvað okkur finnst
ákjósanlegt. Það, sem skiptir meg-
inmáli fyrir Drottin, er, að fólkið,
sem þar býr, hefur enga mögu-
leika til að fá leyst sitt mikla
vandamál nema því sé boðað orðið,
sem hreinsar og gefur samfélag við
Guð. Þetta er staðan, sem Guð
hefur kallað okkur inn í hér. Fólk
og fréttin um, að Þorkell Pálsson
hefði orðið bráðkvaddur, vöktu
mikla hryggð í hjörtum okkar ís-
lendinganna hér í Arba Minch.
Báðir voru þeir sérstakir ágætis-
menn og báru frelsara sínum gott
vitni með prúðmannlegu dagfari
og kærleika. Guð blessi minningu
þeirra.
Ég hef verið töluvert á ferðinni
nú síðustu mánuði og reynt að
hjálpa til í starfinu hér í Gamu
Gofa fylki, eftir því sem ég hef
getað. Það er uppörvandi að sjá,
hve starfið gengur vel, þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika. En það er mikil-
í vanda. Guð hefur leyst vandann.
Hann þarfnast manna til þess að
færa fólkinu lausnina.
Við erum búin að rannsaka að-
stæður í Pokot, eða Suk, eins og
það hét áður. Það hefur verið erfitt
að ákveða, hvar bezt sé að stað-
setja stöðina okkar. Nú erum við
komin að þeirri niðurstöðu, að
Chepareria-svæðið henti bezt. Öld-
ungar og aðrir ráðamenn þar hafa
tekið okkur opnum örmum og vilja,
að við byrjum strax starf. Við er-
um að athuga með lóð fyrir okkur
á þessu svæði. Á föstudaginn kem-
ur förum við á fund með öldung-
unum þar, og ætla þeir þá að sýna
okkur þá staði, sem fólkið vill láta
okkur fá fyrir stöðvarlóð.
Við höfum fundið, að þið hafið
verið með okkur hér og beðið fyrir
okkur og að við mættum finna það
starfssvæði, sem Drottinn hefur
ætlað okkur. Mig langar til að
leggja fram fyi’ir ykkur fjögur ný
bænarefni:
1. Að við fáum hentuga lóð.
2. Að Drottinn opni hjörtu fólks-
ins fyrir fagnaðarerindinu.
3. Að við fáum gott fólk til að
byggja og hentugan efnivið til að
byggja íbúðarhús á stöðinni.
4. Að Drottinn gefi okkur styrk
til starfa.
Kærar kveðjur til ykkar allra,
ykkar Kjellrún, Skúli og börnin.
vægt. að kristniboðsvinir biðji
mikið fyrir kristnum bræðrum og
systrum hér í Eþíópíu.
Ég er búinn að vera í vikutima
í Konsó og hjálpa til í safnaðar-
starfinu þar. Barrisja Húnde,
stöðvarstjóri, stendur sig með
prýði. Hann er mjög iðinn við að
fara út í hérað og boða Guðs orð.
Ég vona, að ég geti lagt betur lið
í starfinu þar. þegar við flytjum
til Konsó á næsta ári, eins og ráð-
gert er.
Ég læt hér staðar numið. Ég er
senn á förum til Galta, en það
er dönsk kristniboðsstöð. Þar mun
ég verða í viku. Síðan fer ég snögga
ferð til Addis Abeba og næ heim
rétt fyrir jól. Skilaðu kveðjum til
allra vinanna. Guð blessi ykkur
ríkulega í þjónustunni við hann.
Kveðja með Róm. 8,1.
Libveizla í starfinu
8