Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1979, Blaðsíða 11

Bjarmi - 01.01.1979, Blaðsíða 11
Fagnaðarerindið um Jesúm Krist berst um byggðir og ból í Eþíópíu. Sums staðar eru valcningar, en einnig er hart barizt ó móti. Biðjum fyrir boðendum orðsins. >f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f>f^->f>f><- hátt, á ríkissjúkrahúsi í sósíalista- ríki. Biðjið þess með okkur, að við fáum að halda áfram, svo lengi sem Guð vill. Það er hart barizt, en við vit- um, að Jesús er sigurvegari, og við megum lifa í sigri hans dag frá degi. Öruggt og gott er að vita, að Guð er sá, sem hefur alla þræði í sinni hendi. Það er hann, sem lýkur upp, svo að enginn læsir, og læsir, svo að enginn lýkur upp, Opinb. 3,7. Kirkjan hér á stöðinni er troð- full á hverjum sunnudagsmorgni, þegar guðsþjónusturnar eru haldn- ar. Mest er þetta skólaæska. Fögur sjón á að líta! Orðinu er sáð, og Guð gefur ávextina. Margir þola illt vegna trúar sinnar. Satan, hin slóttuga slanga, beitir vélabrögðum sínum eins og fyrr. Hann kann að bregða þess konar Ijósi á hlutina, að þeir virðast eftir- sóknarverðir og meinlausir við fyrstu sýn. Margir gengu í gildr- una og gerðu sér kannski ekki grein fyrir því fyrr en um seinan, að þeir voni í f jötrum Satans. Það, sem boðað var, að væri hið mikla frelsi, var í raun og veru ánauð. Fyrir nokkrum árum vitnuðu margir þeirra með djörfung um Jesúm, að hann væri Drottinn þeirra, og voru jafnvel fúsir til að þola þjáningar hans vegna. Síðan hafa þeir valið sér annars konar frelsi, sem er ekki neitt frelsi. Sumir þeirra vinna markvisst gegn sannleikanum. Nú eru margir þeirra innan veggja fangelsanna, en ekki vegna Krists. Þetta er al- varlegt umhugsunarefni. Gleym- um ekki að biðja fyrir þeim. Hverf aftur, þú fráhorfni . . . segir Drott- inn. Já, Guð elskar líka hinn frá- horfna með eilífum kærleika, og hann biður hann að snúa aftur. Sterk öfl eru að verki á móti söfnuði Guðs. Kristnir menn verða að þola margvíslega reynslu. Þeir þurfa oft að velja, og eru málin einatt sett þannig fram, að erfitt er að vita, hvað er rétt. Álagið á þeim er mikið. Biðjið fyrir þeim. Jónasi og Ingibjörgu líður vel. Jónas fór til Gressi í gær. Þar veröur hann nokkra daga og kenn- ir á biblíunámskeiði, sem verið er að halda á stöðinni þar. Dyr eru víða opnaðar upp á gátt, og and- stæðingarnir eru margir. ÆÖsta þjónustan Tíminn er stuttur. Okkur ber að starfa, meðan dagur er, og benda á Jesúm, sem hefur borið synd alls heimsins, til þess að við skyldum hljóta lausn. Samt eru þeir fáir, sem frelsast, segir orð Guðs, af því að þeir vilja ekki veita þess- um boðskap viðtöku. En öllum þeim, sem tóku við honum, gaf hann rétt til þess að verða Guðs börn, þeim, sem trúa á nafn hans. Ég þakka ykkur aftur fyrir fyrirbæn! Það er sælt að vita, að í heimalöndum okkar eru þeir, sem unna sér ekki hvíldar, heldur hrópa til Guðs dag og nótt, einnig vegna þessa lands og lýðs og vegna okk- ar, sem höfum verið send með fagnaðarerindið. Ó, að við mætt- um reynast trú í þjónustunni, sem Guð kallaði okkur til, hver á sín- um stað. Guð blessi ykkur ríkulega í þjón- ustu fyrirbænarinnar. Hún er mest og æðst allrar þjónustu, sem Guð hefur úthlutað okkur. Bregðizt ekki í þeirri þjónustu! Við þökk- um Guði fyrir ykkur. Hjartanleg kveðja í Jesú nafni. Elsa Jacobsen. 11

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.