Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1979, Blaðsíða 10

Bjarmi - 01.01.1979, Blaðsíða 10
ELSA JACDBSEN SKRIFAR HVER DAGUR ER DÝRMÆT GJÖF Arba Minch, 31. 10. 1978. Kæru kristniboðsvinir. Það er orðið langt um liðið, síð- an þið hafið heyrt frá mér. Ég þakka ykkur fyrir öll bréfin, sem ég hef fengið, þar sem ég er minnt á, að þið kristniboðsvinir munið líka eftir mér, þegar þið biðjið. Guð launi ykkur það. Við þökkum Guði fyrir ykkur öll. Hann veit, hvar þið eruð. Fyrirbænin áþreifanleg Ég hef kannski aldrei tekið eins vel eftir því og nú, að þeir eru margir, sem biðja. Það er stórkost- legt. að Guð hlustar á okkur, þeg- ar við komum fram fyrir hann í nafni Jesú í þakkargjörð og bæn. Hér eru fleiri tækifæri til að boða fagnaðarerindið en nokkru sinni fyrr. Guðs ríki breiðist út í erfiðleikum og þrengingum. Ég er Guði þakklát fyrir, að ég hef feng- ið að vera hér einnig þetta árið. Ég hef séð ávextina af því, sem aðrir hafa sáð. Það er hrífandi að fá að sjá, hvemig Guð starfar. Hann hefur gefið vakningu á mörg- um stöðum á landinu. Fólk hungr- ar í orð Guðs. Þegar svo er háttað, færist harka í hina andlegu baráttu. Djöfullinn æðir. Hann veit, að hann hefur nauman tíma. Hann æðir, af því að menn sjá synd sína, fyrir áhrif orðsins, og trúa því, að þeir séu hólpnir vegna friðþægingardauða Jesú á Golgata. — Á sjúkrahúsinu gengur allt eins og venjulega. Jóhannes er hér einn læknir þessa stundina, svo að hann hefur í mörg horn að líta. Norski læknirinn er í fríi og er væntan- legur eftir viku. Hjúkrunarkona er líka farin, svo að Áslaug hefur hjálpað okkur, sérstaklega á skurð- stofunni. Það kemur sér vel. Sífellt er hér yfirfullt af legu- sjúklingum. Margir koma langt að til að leita hjálpar. Um það bil 150 sjúklingar koma daglega á varð- stofuna. Margir þurfa að gangast undir rækilega rannsókn, og það tekur tíma. Biblían í fangelsið Við höfum kristileg smárit og biblíuhluta hér fyrir framan okk- ur á skrifborðinu og dreifum meðal þeirra, sem koma. Flestir taka við þessu glaðir, og margir vilja líka kaupa Biblíur. Oft koma fangar í hópum og þurfa meðferð vegna ýmissa sjúk- dóma. Þeir eru flestir vel mennt- aðir. Þeir biðja um Biblíur og fá allir hver sitt eintak, þegar þeir fara. Fangaverðirnir spyrja líka, hvort þeir fái ekki bók, og við gef- um þeim líka Biblíur, hverjum og einum. Undanfarin ár hefur ekki verið veitt heimild til þess að fara í fangelsin og hafa þar helgistundir. Það er dásamlegt, að við skulum fá að senda orð Guðs inn í fangels- ið á þennan hátt. Verum samtaka um að biðja Guð þess, að hann opni orðið fyrir öllum þeim, sem lesa, svo að vakning verði í fang- elsinu. Þeir eru margir, sem þar dveljast. Fjöldi fólks hlustar á orð Guðs í anddyri sjúkrahússins á morgni hverjum. Það er gott að tala og vel hlustað. Þó finnum við, að hin andlega barátta er líka háð hér á spítalanum. Sumir starfsmennirnir eru kristnir, en svo eru aðrir, sem eru andsnúnir. Þannig verður það alltaf, þegar Guð opnar dyr. Frelsi og ánauð Hver dagur er dýrmæt gjöf með nýjum tækifærum. Ó, að við not- uðum þau, meðan færi gefst. Við lítum á það sem undursamlegt kraftaverk Guðs, að við höfum allt fram á þennan dag fengið að pre- dika fagnaðarerindið á þennan Anægjuleg framtakssemi Gjaldkeri Kristniboðsfélags kvenna á Akureyri, Sigríður Zak- aríasdóttir, hringdi til mín á síðast- liðnum jólum og skýrði frá því, að nokkrir unglingar úr KFUM og K þar í bæ hefðu fyrir nokkru komið til sín með 90.500 krónur til kristni- boðsins. Höfðu unglingarnir tekið að sér barnagæzlu fyrir jólin og ákveðið, að launin, sem þeir fengju fyrir það, skyldu renna til kristni- boðsins. Unga fólkið á þakkir skildar fyrir þessa ánægjulegu framtaks- semi og þann kærleika til kristni- boðsins og útbreiðslu Guðs ríkis, sem hún ber vott um. Guð blessi þau öll- - G.Sj. 10

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.