Bjarmi - 01.01.1979, Síða 5
Trúaður
læknir
Eftirfarandi grein er þýdd úr tima-
ritinu HEART, málgagni Kristilegra
alþjóSasamtaka heilbrigðisstétta.
Þetta er fróSlegt viStal viS trúaSan,
kristinn lœkni, Ernest T. Anderson.
og segir hann frá því, hvernig hann
leitast viS aS vitna um Krist meSal
sjúklinga sinna.
„Mig langar til að byrja á því
að spyrja yður um skoðun yðar á
læknastarfinu og hvemig það er
tengt hinni miklu og hinztu skip-
un, sem Kristur gaf lærisveinum
sínum. Teljið þér, að læknar veg-
sami Krist bezt með því að beita
læknislistinni út í yztu æsar og
vísa sjúklingum, sem glíma við
andleg vandamál, til andlegra ráð-
gjafa? Eða lítið þér svo á, að
ábyrgð yðar og skylda gagnvart
sjúklingunum sé bæði bundin hinu
andlega og líkamlega?“
„Ég trúi því, að Guð ætlist ekki
til þess, að trúaðir menn helgi sig
honum á einu sviði af tveimur,
annars vegar á sviði prestsins og
hins vegar á sviði leikmannsins.
Það er ljóst af ritningarköflum
eins og Jóh. 15, að Guð vill, að
allir menn séu bundnir honum al-
gjörlega eða alls ekki. Með öðrum
orðum: Menn tilheyra Jesú Kristi
eða ekki, og séu þeir hans, þá eru
þeir hans afdráttarlaust og algjör-
lega.
Ég held, að Guð hafi leitt mig
til þess starfs, sem ég stunda. Ég
tel, að þar beri mér beinlínis skylda
til að vitna fyrir sjúklingum mín-
um. Þetta eru tvímælalaust forrétt-
indi, og ég má ekki taka þessu létt-
um tökum.“
„Reynið þér að bera vitni fyrir
sérhverjum sjúklingi, sem kemur
til yðar, eða vitið þér einhvern veg-
inn, hvenær Guð leiðir yður til
þess að tala við mann um andlega
þörf hans og benda honum á Jesúm
Krist?“
„Þetta er ágæt spurning. Ég
hafði áhyggjur út af þessu um
tíma, því að í byrjun starfs míns
fannst mér ég verða að vitna með
orðum fyrir öllum sjúklingunum.
Mér þótti oft sem ég yrði að vera
ágengur, og slíkt er afleitt.
Ég áttaði mig fljótlega á því, að
andleg þjónusta hvers manns verð-
ur að hefjast að morgni dags, þeg-
ar hann á hljóða stund með Drottni.
Ef hann sleppir henni, verður hin
andlega þjónusta hans árangurs-
laus. Hann vinnur þá í eigin mætti
og eyðir oftast nær kröftunum til
einskis.
En sá, sem byrjar daginn á því
að biðja um handleiðslu, er hann
ber Kristi vitni, hann kemst að því,
að tækifærin eru svo margvísleg
og uppörvandi, að hann þarf alls
ekki að leita þeirra. Ég er krist-
inn læknir, og sá dagur líður ekki,
að mér gefist ekki tækifæri til að
gefa ráð í andlegum málum. Þeg-
ar dagur er að kvöldi kominn,
undrast ég, hversu marga Guð hef-
ur leitt á veg minn og viljað, að
ég vitnaði fyrir þeim.“
„Gerið þér nokkuð til að stuðla
að því, að fólk komi auga á þessi
tækifæri?“
„Já. Ég bið þess, að hver sjúkl-
ingur, sem kemur á stofu hjá mér,
fái einhvern tíma að heyra beinan
vitnisburð, annað hvort af vörum
hjúkrunarkonunnar minnar eða af
vottur
Krists
mínum munni. Þess vegna hef ég
Biblíu frá Gídeonfélaginu á bið-
stofu minni og vönduð smárit á
tveim borðum úti í horni — og ég
hef komizt að raun um, að þetta
er mikið lesið.“
„Hvernig vekið þér máls á and-
legu ástandi sjúklinganna?“
„Aðferðirnar eru auðvitað marg-
ar, og þetta er svo persónulegt og
veigamikið atriði, að engin upp-
skrift er algild. Þó finnst mér bezt
að átta mig á því, hvort Guð sé
að gefa mér tækifæri til að hjálpa
sjúklingi í andlegum efnum, þegar
lokið er allsherjar læknisrannsókn
eða meðan verið er að spyrja hann
eins og venja er um hagi hans.
Sé um seinna tilvikið að ræða
og komið er að sálarlífi hans, þá
spyr ég: „Eigið þér við nokkur til-
finningavandamál að stríða?" Þetta
getur verið orðað á ýmsa vegu,
en í svarinu kann hann að víkja
að mörgum vandamálum og kvört-
unum. Þá er auðvelt að benda við-
komandi á lœkninn mikla, græðar-
ann gæzkuríka, sem getur létt okið
og lyft undir byrðina, en ég legg
áherzlu á drottinvald hans gagn-
vart sérhverjum einstaklingi og
vald til að frelsa hvern mann.
Sé ég að ljúka allsherjar rann-
sókn, ræði ég um hana við sjúkl-
inginn. Þá er auðvelt að haga orð-
um sínum eitthvað á þessa leið:
„Svona virðist mér vera ástatt um
líkama yðar. Ég er kristinn læknir,
og mig langar til að vekja athygli
yðar á, að maðurinn er meira en
bein og æðar og líffæri. Hann er
andleg vera. Maður getur notið
góðrar líkamsheilsu og verið samt
5