Bjarmi - 01.01.1979, Síða 9
Vakning og barátta
Jóhannes Ólafsson skrifar í einka-
bréfi 27. nóv. frá Arba Minch:
Hjá okkur hefur verið annríkt
undanfarið. Félagi minn, Karl
Roth, læknir, var í f jögurra vikna
leyfi, en á meðan var ég einn lækn-
ir hér. Einn læknir kemst ekki yfir
að sinna allri vinnunni sem skyldi,
og er leitt, að fólk skuli þurfa að
bíða lengi eftir því að fá viðtal við
lækni.
Aðsókn hefur aukizt. Margt fólk
kemur langt að. Stafar það af því,
að kristniboðar hafa farið frá
sjúkrahúsinu í Soddú og Shase-
manne. Rekstur þeirra sjúkrahúsa
er því ekki eins umfangsmikill og
var. Þó að heill fjöldans eigi að
sitja í fyrirrúmi samkvæmt hug-
myndafræðinni, sem verið er að
innræta fólki, sér almenningur, að
þetta sjónarmið ríkir öðni fremur
hjá kristniboðunum.
Það er náð Guðs að fá að vera
í þessari þjónustu, að hann vill
nota okkur sem verkfæri og vitni
um kærleika sinn. Þjónusta fyrir
sjúklingana er líka vitnisburður
um kærleika Guðs, sem úthelt er
í hjörtu barna hans.
Við vorum í Gídole í síðustu
viku, leystum þar Klungsöyr lækni
af. Það var hvíld að koma til
Gidole. Það hittist svo á, að til-
tölulega lítið var fyrir mig að
gera. Svo er hvíld í því að koma
í annað umhverfi og annað lofts-
lag.
Starfið í Gídole hefur gengið
erfiðlega eftir byltinguna. Kirkjan
sagði upp allmörgum starfsmönn-
um, þegar lágmarkslaunin voru
hækkuð. Þetta varð til þess, að
margir starfsmenn yfirgáfu kirkj-
una. Sumir gerðust jafnvel and-
stæðingar. Margir unglingar, sem
voru í kirkjunni, urðu stjórnmála-
fulltrúar.
Mig grunar, að þeir hafi litið á
kirkjuna sem keppinaut um hylli
fólksins, og gert allt, sem þeir gátu
til þess að eyðileggja fyrir trúuð-
um mönnum.
En hylli heimsins er fallvölt.
Fyrr en varði voru flestir þessir
menn fangelsaðir fyrir að fara með
falskenningar og leiða fólk í villu.
Starfið í þorpunum er að glæð-
ast að nýju. Á sumum stöðum er
mikið líf, einkum meðal æskunnar.
Hér í bænum hefur verið vakn-
in. Vakningahreyfingin er nokk-
urra ára gömul. Gætti hennar einn-
ig undir fyrri stjórn. Þátttakendur
hennar voru þá ofsóttir og sátu
iðulega í fangelsi. Var þetta trú-
aða fólk sakað um að vera hvíta-
sunnuhreyfing, sem ætti ekki rétt
á sér.
Hreyfing þessi virðist vera
sprottin upp á meðal menntaðrar
skólaæsku, og var ekki hægt að
rekja nein bein tengsl við erlend-
ar hreyfingar. En með henni hefur
borizt vakning inn í kirkjurnar,
sem fyrir voru. Þessi vakninga-
hreyfing er enn illa séð af mörg-
um. Hér í bæ voru nokkrir árekstr-
ar milli öldunganna í okkar kirkju
og ungs fólks, sem hallaðist að
þessari hreyfingu. Þetta hefur
breytzt nokkuð.
Eitt er víst, og það er, að vakn-
ing hefur verið hér í bænum á
meðal skólaæskunnar og það fyrir
vitnisburð þessa unga fólks. Hefur
það líka fært með sér vakningu
inn í okkar kirkju.
Jafnframt gerist það, að guð-
leysiskenningum er mjög haldið á
lofti. Nú á dögum er enginn vinn-
ingur, frá veraldlegu sjónarmiði,
að kalla sig kristinn. heldur kost-
ar það þvert á móti baráttu og
jafnvel áhættu að játa kristna trú.
Stuðlar þetta að því að knýja menn
til að taka ákveðna afstöðu með
eða móti.
Þrátt fyrir allt, sem unnið er
gegn guðsríki, finnum við, að fólk
hungrar eftir Guðs orði. Aldrei
hefur verið betur hlustað á guð-
ræknisstundunum í sjúkrahúsinu
en nú. Mikil eftirspurn hefur verið
eftir Biblíum. Á sjúkrahúsinu einu
hafa verið seldar á annað þúsund
Biblíur!
Orð Guðs verður ekki fjötrað.
Það ber ávöxt hér í Eþíópíu.
Við óskum ykkur blessunar Guðs
á nýju ári. Jóh. 1,14.
—
Póstfang
Utanáskrift til íslenzku kristni-
boðanna og Elsu Jacobsen er á
þessa leið:
Dr. Jóhannes Ólafsson
Arba Minch Provincial Hospital
P. O. Box 28
Arba Minch
Ethiopia
Africa
Rev. Jónas Thórisson
E.M.C.Y. Station
P. O. Box 14
Arba Mineh
Ethiopia
Africa
Rev. Skúli Svavarsson
P. O. Box 2272
Kitale
Kenya
Africa
Miss Elsa Jacobsen
Arba Minch Provincial Hospital
P. O. Box 28
Arba Minch
Ethiopia
Africa
------------------------------------/
Látinn laiii
Þær fréttir hafa borizt frá Eþí-
ópíu, að Gúdína Túmsa, aðalfram-
kvæmdastjóri lúthersku kirkjunn-
ar í landinu, hafi verið látinn laus
úr fangelsi, en hann var hnepptur
í varðhald í október, eins og getið
var í síðasta tölublaði Bjarma.
Mun Gúdína því vera tekinn til
starfa að nýju í þjónustu kirkjunn-
ar. Þetta er þakkarefni.
Enn eru kristnir menn í hópi
þeirra mörgu, sem sitja í fangels-
um í Eþíópíu. Eru kristniboðsvinir
hvattir til að minnast þeirra í bæn-
um sínum. Biðjum fyrir Eþíópíu-
mönnum. Þeir búa margir við
hungur, sjúkdóma og aðrar hörm-
ungar, auk hins mikla öryggis-
leysis, sem fylgir umrótinu í þjóð-
félaginu. Biðjum fyrir þeim, sem
völdin hafa.
9