Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1985, Blaðsíða 21

Bjarmi - 01.01.1985, Blaðsíða 21
HN W Á síðasta ári var tölublöðum Bjarma fjölgað úr 6 í 10. Mæltist það vel fyrir hjá þeim áskrifendum sem haft hafa samband við aðstandendur blaðsins. í ár er ætlunin að halda sama tölublaðafjölda, en gera þó enn betur og stækka blaðið úr 16 síðum í 24 hvert tölublað. Auk þess er bætt við aukalit á nokkrar síður og betri pappír notaður. Er þetta gert í þeirri von að Bjarmi verði enn kærkomnari áskrifendum og geti jafnframt þjónað hlutverki sínu betur sem boðberi fagnaðarerindisins um Jesúm Krist. Þá er það von aðstandenda blaðsins að betra blað verði til að fjölga áskrifendum. í því sambandi viljum við leita til þeirra sem nú kaupa blaðið og hvetja þá til að taka þátt í því með okkur að gera átak í því að fjölga áskrifendum blaðsins. Ef allir eru með verður áskrifendafjöldinn fljótlega orðinn slíkur að Bjarmi getur orðið enn betra og stærra blað. Áskrift í ár kostar aðeins 500 kr. og ætti það ekki að verða neinum hindrun. En þeir sem afla blaðinu a.m.k. þriggja nýrra áskrifenda fyrir 1. mars fá blaðið ókeypis í ár. Verum því með — gerum átak — öflum Bjarma nýrra áskrifenda. Nafn:---------------------------------------------------------Nafnnr. Heimili:------------------------------------------Póststöð:----------- Nafn: -Nafnnr. Heimili: Póststöð: Nafn:--------------------------------------------------------Nafnnr. Heimili:-----------------------------------------Póststöð:---------- Sendist til Bjarma, Pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sendandi:------------------------------------------------Heimili: — 21

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.