Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.12.1987, Side 5

Bjarmi - 01.12.1987, Side 5
Orðið varð hold: „Jólaguðspjallið“ — það finnst mörgum vera fyrst og fremst jólafrá- saga Lúkasar, um fæðingu barnsins í Betlehem, um aðdragandann, fjár- hirðana o.s.frv. Upphafsorðin í guðspjalli Jóhann- esar eru líka lesin í kirkjunum á jólun- um. Þar er „jólaguðspjall“ Jóhannes- ar og sumir segja að það hefjist á himnum hjá Guði: „í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Hann var í upphafi hjá Guði. Allir hlutir urðu fyrir hann, án hans varð ekki neitt sem til er... Og Orðið varð hold, hann bjó með oss fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans, dýrð sem sonur- inn eini á frá föðurnum“ (Jóh. 1,1- 3,14). Orðið, hann, sonurinn, þessi hug- tök koma fyrir aftur og aftur í byrjun guðspjallsins og er ljóst að með þeim er verið að tala um Jesúm Krist. Hvað merkir Orðið hér? Hvert er gildi þess að Orðið, sonurinn, varð hold og bjó með oss? Jesús Kristur er kallaður Orðið vegna þess að hann er fullkomin tján- ing á hugsun föðursins á himnum, full- komin sjálfsopinberun hans í heimin- um. Menn láta hugsanir sínar í ljós með orðum. Eins hefur faðirinn himn- eski birt innsta eðli sitt í Jesú Kristi. í síðgyðingdómi var það kennt að lögmálið hefði verið skapað í upphafi, það væri hjá Guði, að allt annað væri skapað fyrir það. Það var ljós mann- anna og „varð hold“ á þann hátt að það var ritað á bók. Þessa kenningu er þegar að finna í Síraksbók 24,1-22, sbr. v. 33: „Allt þetta snertir... lög- málið sem Móse gaf oss.“ Gegn þessari kenningu síðgyðing- dómsins um lögmálið setur Jóhannes fram Jesúm Krist. Hann segir miklu meira um hann en Gyðingar gátu sagt um lögmálið: Lögmálið var skapað í upphafi en Kristur var í upphafi. Þannig er hann ekki sköpuð vera. Hann var ennfrem- ur Guð en óhugsandi var að Gyðingar segðu það um lögmálið hversu hátt sem þeir mátu það. Þegar Kristur varð hold bjó hann á meðal okkar. Kenning síðgyðingdómsins um lög- málið er í tengslum við ummæli Gamla testamentisins um orð Guðs. Það er alloft persónulegt sjá t.d. Sálm. 107,20; 119,89; 147,15,19. „Orðið var Guð. Ef hann hefði að- eins verið maður hefðu orð hans og verk ekki guðdómlegt gildi. En þar sem hann er Guð eru orð hans orð Guðs og kærleikur hans kœrleikur Guðs, friðþægingarverk hans verk Guðs. Hjálpræði okkar er því óhagg- anlegt eins og kletturinn. Við tökum undir með hinum guðhrædda Zinz- endorf er hann segir: „Það brennur í mér eins og logandi eldur að vitna um hinn sanna guðdóm Krists." Og við játum með Marteini Lúther: „Ég trúi að Jesús Kristur, sannur Guð, fæddur af föðurnum frá eilífð..." „Nú á þessum fráfallstímum þurfum við að standa sem fastast á þessari setningu. „Og Orðið varð hold.“ Allur kristindómurinn stendur og fellur með þessum orðum“ (Herbst). Lestu nú „jólaguðspjall“ Jóhannes- ar aftur með þetta í huga. Og mundu að jólin og allt sem í þeim felst er gjöf sem okkur var gefin vegna þess að Guð elskar þig og alla menn. Gjöfinni er veitt viðtaka með því að trúa á Jes- úm Krist og fela honum líf sitt og alla framtíð. „Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn einget- inn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf“ (Jóh. 3,lþ). öleðileg j6 5

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.