Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1987, Síða 15

Bjarmi - 01.12.1987, Síða 15
hreyfingunni sögðu: Við getum unnið á sama hátt og þeir innan lúthersku kirkjunnar. —Gnadau-hreyflngin starfar þá innan lúthersku kirkjunnar? — Já, þeir vildu ekki stofna nýja kirkju eða greina sig frá kirkjunni. Þeir vildu starfa innan hennar og efla starf hennar. Það var m.a. gert með starfi samfélagshópa, predikunar- starfi o.fl. Hreyfingin breiddist út um allt Þýskaland og starf hennar var öflugt og fjölbreytt. Eftir seinni heimsstyrj- öld breyttust allar aðstæður. Margir höfðu flúið vestur á bóginn og öryggis- leysi var mikið. Þegar Þýskalandi var skipt í tvennt urðum við að stofna okkar eigin hreyfingu í Austur- Þýskalandi, þ.e. Gnadau-hreyfing- una. í Vestur-Þýskalandi og reyndar á nokkrum stöðum í Frakklandi, Sviss og Austurríki höfum við svo áfram Gnadau-samtökin. — Hvernig gekk svo? — Á 6. áratugnum voru menn mjög spyrjandi og kvíðnir. Hvernig skyldi nú ganga að byggja upp starf kirkju í sósíalísku ríki? Á árunum kringum stríð höfðu leiðtogar kirkjunnar hald- ið uppi andkommúnískum áróðri og því voru menn kvíðnir. Það tók okkur allmörg ár að skilja að við berum fulla ábyrgð sem kirkja við þær aðstæður og í því þjóðfélagi sem við búum við. Við erum kirkja í sósíalísku ríki. Þar er starfsvettvangur okkar og þar erum við kölluð til að útbreiða fagnaðarer- indið. Við verðum stundum að leita svolítið sérstakra leiða í starfi vegna þess að þjóðfélagið er breytt og fólk hugsar öðruvísi. Það tók okkur langan tíma að átta okkur á þessu. Það tók ríkisvaldið einnig drjúgan tíma að skilja að kirkjan hafði ekki áhuga á að endurreisa gamla þjóðskipulagið, heldur að fá að starfa í því þjóðfélagi sem var við lýði. En smám saman lærðum við á nýjar aðstæður og aðilar skildu hvorir aðra betur. Starfsað- stæður kirkjunnar í landinu okkar eru því fremur góðar. — Hvernig er starfi Gnadau-hreyf- ingarinnar háttað nú? — Hreyfingin starfar innan lút- hersku kirkjunnar, en hún er ekki lengur ríkiskirkja, það breyttist árið 1918. Skipulag kirkjunnar er þó að mestu svipað og það var áður. Það sem veldur áhyggjum og erfiðleikum er að það eru innan við 2% barna skírð nú um stundir. Meiri hlut þeirra sem tilheyra kirkjunni er því eldra fólk. Það vaknar sú spurning hve lengi hreyfingin getur starfað innan kirkju sem stefnir í raun í það að verða lítil fríkirkja, þótt ytra skipulag sé svipað og áður. Samband og samstarf okkar við kirkjuna er að sjálfsögðu misjafnt eftir stöðum. Víða er það gott. Leiðtogar og prestar í kirkjunni sáu að þeir þörfnuðust okkar. Á mörgum stöðum eru félagar í Gnadau-hreyf- ingunni nánast þeir einu sem koma í guðsþjónustur og þeir eru oft sterkasti hópurinn í kirkjunni. Á öðrum stöð- um eru menn tortryggnir og óttast of mikil pietísk áhrif. í Gnadau-hreyfingunni eru um 25.000 meðlimir. Þá er átt við full- orðna (eldri en 18 ára), fólk sem til- heyrir kirkjunni og hefur jafnframt tekið ákvörðun um að verða félagar í hreyfingunni. Auk þess eru nokkur þúsund „vinir“, sem taka þátt í starfi hreyfingarinnar, m.a. með því að sækja samkomur, án þess þó að vera formlegir félagar. Austur-Þjóðverjar eru tæplega 17 milljónir og af þeim til- heyra um 35% einhverri kirkjudeild. Fjölbreytni í starfi hreyfingarinnar er mikil. Við erum með barnastarf, um 1200 unglingahópa, kóra og tón- listarhópa og á miðjum 7. áratugnum hófum við starf á meðal stúdenta. í gegnum stúdentastarfið höfum við komist í samband við IFES og átt full- trúa á alþjóðlegum fundum. Einnig hafa komist á tengsl við Norðurlöndin og höfum við fengið boð um þátttöku í norrænu stúdentamótunum á síðustu árum. Stúdentastarfið er mikilvægt. Við reynum að koma á biblíuleshópum á heimavistum og stúdentum er boðið á fundi í hreyfingunni. Þetta er þó erfitt starf. Kristnir stúdentar í háskólum eru fáir — þeir fá helst ekki aðgang, jafnvel ekki að framhaldsskólum. — Eru möguleikarnir til starfa miklir eða eru hömlur á starfinu? — Við höfum mikla möguleika til starfa — í raun meiri en við getum notfært okkur. Við ættum því ekki að kvarta þó að vissar hömlur séu á starf- inu. Við höfum ýmsar leiðir til að safna fólki saman, s.s. á sumarmót og ráðstefnur, kóramót, stúdentamót, fjölskyldubúðir o.fl. Á slíkar sam- komur kemur margt fólk sem aldrei hefur heyrt Jesúm Krist nefndan, því að kristið fólk býður vantrúuðum með sér. Hér er því gott tækifæri til vitnis- burðar og fræðslu. Fjölskyldubúðirn- ar hafa reynst þýðingarmiklar þar sem kristnar fjölskyldur fá stuðning hver af annarri. Oft koma upp vandamál vegna barna frá kristnum fjölskyld- um. Það eru settar hömlur á skólanám þeirra, taka þarf afstöðu til Félags sós- íalískra unglinga o.m.fl. Þá er engin kristinfræði kennd í skólum svo að trúarleg fræðsla og uppeldi barnanna er mikilvægt. — Er starflð vaxandi? — Það er misjafnt eftir stöðum. Sumsstaðar er vöxtur. Annars staðar stendur það í stað eða jafnvel dregst saman. Aðstæður eru misjafnar, en hvarvetna eru tækifæri til starfa. Við höfum nóg af Biblíum í landinu þann- ig að fólk getur keypt sér Biblíu ef það vill. Samanborið við mörg önnur lönd er svigrúm til starfa miklu meira hjá okkur en víða í löndum austan járntjalds. Bjarmi þakkar Joachim Drechsel samtalið og biður honum blessunar Guðs í starfi hjá Gnadau-hreyfing- unni. Lesendur blaðsins eru minntir á kristin systkin í Austur-Þýskalandi og hvattir til fyrirbænar. GJG 15

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.