Bjarmi - 01.12.1987, Blaðsíða 26
BREF
Andlegt hungur
í Eþíópíu:
Týndi sonurinn kom aftur
Elsa Jacobsen er færeysk. Hún
hefúr lengi verið kiistniboði ■
Eþíóplu. m.a. í Konsó.
Starfið á sjúkrahúsinu hér í Arba
Minch gengur sinn vanagang. Útlend-
ir starfsmenn eru hér tveir læknar og
fjórar hjúkrunarkonur. Eþíópskum
starfsmönnum hefur fjölgað til muna
síðustu árin. Nú eru hér sex eþíópskir
læknar, átta hjúkrunarfræðingar
(einn þeirra sérfræðingur í svæfingar-
hjúkrun), 58 hjúkrunarliðar (health
assistents), einnig starfsfólk í eldhúsi
og þvottahúsi og ræstingum o.fl. Alls
vinna hér nú um 150 Eþíópar.
Heimamenn taka við æ fleiri
störfum. Margir læknarnir sem hafa
verið hér um tíma eru orðnir mjög
færir. Yfirmenn á öllum sex legudeild-
unum og varðstofunni eru eþíópskir.
Það hefur verið ánægjulegt og upp-
örvandi aðfylgjast með þessari þróun.
Hlutverk okkar nú orðið er einkum að
vera leiðbeinendur. Okkur finnst ekki
að okkur sé ofaukið. Nei, við eigum
annríkt og samstarfið er gott. Fyrir
það þökkum við Guði. Markmiðið
með kristniboðsstarfinu hefur ætíð
verið að hjálpa heimamönnum að
standa á eigin fótum og halda síðan
áfram til þjóðflokka sem ekki hefur
náðst til. Þá er einnig að finna í Eþíóp-
íu.
Margir hlusta
Allt til þessa hefur Guð fengið okk-
ur mikil verkefni á vettvangi kristni-
boðsins hér á sjúkrahúsinu. Starfs-
samningur kristniboðsins og ríkis-
stjórnarinnar er undirritaður þriðja
hvert ár. Samkvæmt honum megum
við boða sjúklingunum hér orð Guðs.
Það er ekki heimilt á öðrum ríkis-
sjúkrahúsum.
Vegakerfið hefur batnað síðustu
árin svo að sjúklingar koma hingað
langt að. Sumir koma líka með flug-
vélum. Það er hrífandi að taka þátt í
guðræknisstundinni á hverjum
morgni og sjá hve fólk hlustar þegar
orð Guðs er boðað. Inni á stofunum
gengur predikarinn um á meðal sjúkl-
inganna og talar við þá um Jesúm.
Hér ríkir hungur meðal fólksins að
hlýða á orð Guðs. Menn verða að fara
snemma til að fá sæti í kirkjunni uppi
á kristniboðsstöðinni í guðsþjónustu á
sunnudögum. Um 600 manns komast
fyrir í kirkjunni. Auk þess sitja alltaf
200-300 manns fyrir utan og hlusta á
hátalara. Margir koma úr bænum en
sumir úr nágrannasveitunum. Nú hafa
margar kirkjur í héraðinu sem voru
lokaðar verið opnaðar að nýju.
Dyrnar eru opnar upp á gátt fyrir
fagnaðarerindinu og andstæðingarnir
eru margir. Starfsfólki sjsukrahússins
er t.d. ógnað og sumir eru hræddir að
koma á morgunstundirnar. Ég sé að
sumir standa inni og hlusta. Hugvekj-
urnar eru haldnar úti á stóru verönd-
inni.
„Hann fannst"
Fyrir eitthvað þremur mánuðum
fannst hálfs mánaðar gamalt barn fyrir
utan sjúkrahúsið. Ekki er enn vitað
hver lét barnið þarna og kemur sjálf-
sagt aldrei í ljós. Litli drengurinn
hlaut nafnið Tegenje. Það þýðir
„Hann fannst“. Hann var lagður á
barnadeildina. Það kom brátt á dag-
inn að drengurinn var veikur. Hann
hafði „vatnshöfuð“.
Einn daginn kom læknirinn inn til
mín og sagði að óvíst væri um líf
drengsins. Honum fannst að við ætt-
um að skíra hann. Sama dag fór ég að
undirbúa skírnina. Þá átti einn hjúkr-
unarliðinn leið um hjá mér, Shewane
að nafni. Hann spurði hvað ég væri að
gera. Ég svaraði því. Við töluðum
saman stundarkorn og ég spurði hann
m.a. hvort öll börnin hans væru skírð.
Ég þekki Shewaneh frá því hann
var ungur drengur í Gídole. Hann
byrjaði á því að vera næturvörður á
sjúkrahúsinu en sótti skólann á
daginn. Seinna varð hann liðléttingur
á rannsóknarstofunni. Þetta var
athugull og geðugur piltur. Hann vildi
vera kristinn. Nokkru síðar kom hann
í sjúkraliðaskólann í Negelle. Hann
kvæntist. Allt gekk vel um tíma en svo
féll hann í synd, tók sér aðra konu.
Hann hvarflaði frá Jesú. Hann hefur
ekki komið í kirkju í mörg ár. Nokkur
ár eru síðan hann rak fyrri konuna frá
sér.
Þegar ég spurði hann hvort börnin
væru skírð svaraði hann að þrjú
yngstu börnin væru óskírð. — Börnin
koma alltaf í kirkjuna, sagði hann. —
Þið verðið líka að koma, sagði ég. Já,
þau ætluðu að gera það.
Næsta sunnudag var Shewaneh í
guðsþjónustunni. Ég hef sjaldan séð
neinn hlusta af eins mikilli athygli þeg-
ar orð Guðs er boðað.
Nokkrum dögum síðar átti hann
erindi á skrifstofuna. — Það var
ánægjulegt að sjá þig í kirkjunni,
sagði ég. Hann tyllti sér og við gátum
aftur rætt saman um það sem heyrir
eilífðinni til. — Okkur langar til að
koma aftur til Jesú, sagði hann, —við
viljum láta skíra börnin. —Þú verður
að tala við prestinn um þetta. Hann
hét því.
Viljið þið biðja fyrir Shewaneh og
26