Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1995, Page 7

Bjarmi - 01.12.1995, Page 7
'■*wm Ég er ljós heimsins. í orðum Jesú felst þetta: Spurðu ekki: Af hverju? Guð er að verki, horfðu til birt- unnar hans og tendraðu Ijós til hjálpar og blessunar öðrum: Oss ber að vinna verk ljóssins, tendra ljós og lina þrautir. En skýrast svar fáum við í myrkasta myrkri alls, á Golgata. Engir englar komu þar í ljós og engin hjálp af hæðum. Neyðaróp Jesú: Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig! hefur níst í gegnum merg og bein ástvina hans. Hallgrímur íhugar þetta neyðaróp og angist og segir: „Yfirgefur því aldrei mig eilífur Guð hans vegna.“ Guð er ekki refsivöndur hefnandans. Guð er rnisk- unn og mildi kærleikans. Þegar hið illa gerist, þegar hið skelfilega skeður, þegar myrkrið leggst yfir og sorgin nístir, þá er Guð líka þar, í þeirri skelfingu, í því myrkri. Hvergi hjá Jesú mætum við útskýringum. Hvergi sjáum við hann gefa þjáningunni málsbætur né hvetja hinn þjáða til að læra af þessu. Eins og við heyrum svo oft: Þetta er til að þú lærir auðmýkt eða næðir andlegum þroska eða færist nær Guði eða hvað það nú er sem viðkomandi finnst að hinn þurfi á að halda og lærði aldrei sjálfur! Jesús reynir ekki að finna þjáningunni málsbætur né útskýra eðli liennar og uppruna. Hann tekst á við hana, læknar, líknar. Hvert sinn sem við mætum sjúkdómum og sorg þá er það dæmi eða forsmekkur dauðans. Hvert sinn setn Jesús læknar sjúkan þá er það páskaprédik- un, þá er það dæmi, vottur þess að hann læknar mein og leysir viðjar og þerrar tár. Við upplifum líka upprisu hvar sem við rísum gegn dauðanum í lífinu, gegn ranglæti og misrétti, þegar kærleikurinn sigrar, umhyggjan, miskunnsemin, þá er ríki Guðs að verki og kraftur upprisu hans. Barnib og bölib „Hún Tóta er dáin,“ sagði mamma litla 4 ára strákn- um sínum og hann svaraði: „Dáin? Svona eins og í sjónvarpinu?“ Önnur móðir þurfti að segja syni sín- um, 3 - 4 ára, sorgarfregn. Hún tók hann í fangið og sagði nærfærin: „Hann afi þinn er dáinn“ Og strákurinn leit snöggt á hana og sagði: „Hver skjótt' hann?“ Börnin upplifa hörmungafréttir í sjónvarpi og sjá dauðann á skjánum. Og þau upplifa það á marga vegu. Barn yngra en fimm ára er raunsætt og það hugsar ekki út frá huglægum forsendum heldur hlutlæguin einungis. Það hefur ekki tímaskyn og í Hvert sinn sem Jesús kknar sjúkan þá er það páskaprédikun, þá er það dcemi, votturþess að liann kknar mein og leysir viðjar og þerrar tár. 7

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.