Bjarmi - 01.12.1995, Blaðsíða 15
F - SÍÐAN
Sælgætisgerðarmaður nokkur í
Indiana-fylki í Bandaríkjununr
langað til að framleiða vöru,
sem vitnisburður væri fólginn í.
Hann bjó því til sérstakan
jólabrjóstsykur sem var
í laginu eins og
stafur. Stafurinn
átti að tákna sitt af
hverju í fæðingu, starfi
og dauða Jesú Krists.
Maðurinn byrjaði með lengju af hreinum, liörð-
um, livítum brjóstsykri. Hvíti liturinn táknaði
meyfæðingu og syndleysi Jesú. Hart efni táknaði
bjargið trausta, grundvöll kirkjunnar og
óhagganleg fyrirheit Guðs.
Sælgætisgerðarmaðurinn hafði brjóstsykurinn
sem „J“ í laginu til að vísa á hið dýrðlega nafn
Jesú, sem kom til jarðar sem frelsari okkar. Það
gæti líka táknað starl' góða hirðisins, sem hann
notar til að seilast niður í gjótur tilverunnar og
lyfta upp föllnum lömbum, sem ratað hafa í villur
eins og aðrir sauðir.
Nú þótti sælgætisframleiðandanum
góðgætið vera í einfaldara lagi og því
skreytti hann það með rauðum röndum. Mjóu
rákirnar þrjár sýndu förin eftir húðstrýkinguna,
sem Jesús varð að þola til að við mætturn fá
lækningu okkar meina. Breiða, rauða röndin var
fyrir blóðið, sent úthellt var á krossi Krists svo að
við rnættum fá fyrirheitið um eilíft líf.
Illu lieilli varð þetta góðgæti þekkt sem „brjóst-
sykurstarfurinn". merkingarlaust skraut til notk-
unar um jólaleytið. En merkinguna má enn finna
fyrir þá, sem „hafa eyru til að heyra og augu til að
sjá með." Við skulum biðja þess að þetta tákn
megi á ný verða notað til vitnisburðar um undur
Jesú og hinn stórkostlega kærleika Guðs, sem til
okkar kom um jól og hefur æ síðan verið og er enn
ríkjandi grundvallarafl í heiminum.
15