Bjarmi - 01.12.1995, Síða 18
KRISTNIBOÐ
Daubinn vís
„Þau vöknuðu einn daginn árla morguns til þess að
fara í innkaupaferð til Arba Minch, þau Else Marie
Elleby og maður hennar sem starfa um þessar
mundir í Voitó í Suður-Eþíópíu. En rétt um það bil
sem hjónin voru að leggja af stað kom maður til
þeirra og bað þau að koma út í þorp því að þar væri
kona komin að því að fæða og þyrfti að komast á
sjúkraskýlið á stöðinni.
Hjónin frestuðu því innkaupaferðinni og sóttu
sængurkonuna, sem var mjög ung, og ömmu hennar.
Síðar um daginn fæddist lítið barn á sjúkraskýlinu.
En þá kom í Ijós að þetta var enginn gleðidagur því
að amman var tilbúin með hníf til að drepa barnið.
Ungan konan var ógift og barnið því fætt utan
hjónabands og átti þar með að deyja.
I þetta sinn tókst kristniboðunum að bjarga barn-
inu með því að lofa að fara burt með það strax
morguninn eftir. Kristin kona, sem var með barn á
brjósti, gaf þessu barni líka mjólk þar til það var
flutt næsta dag til þorpsins Dokottó í Konsó en þar
eru kristnar fjölskyldur er taka á móti börnum sem
aðrir hafa hafnað."
Annar var sá sem dó
Bjami Gíslason og Elísabet Jónsdóttir í Addis Abeba
segja frá ofangreindu atviki í jólakveðju til kristni-
boðsvina og þau bæta við:
Síðar um daginn fœddist lítið barn á
sjúkaskýlinu. En j)á kom í Ijós að þetta var
enginn gleðidagur því að amman var tilbúin
með hníftil að drepa barnið.
„Geta svona hlutir gerst í dag árið 1995? Já, því
miður er þetta staðreynd. Guð einn veit hve mörg-
um börnum í Voitó á þessu ári var synjað um líf
vegna siða og trúar sem rígbindur fólkið í myrkri
Satans þar sem hann ræður ríkjum. Og Guð einn
skilur sorg ungu móðurinnar sem missti barnið sitt
en um leið gleði hennar yfir því að lífi þess var þó
bjargað.
A fyrstu jólunum fæddist barn sem ekki var rúm
fyrir í gistihúsinu og Heródes vildi láta deyða.
Þessu barni var líka bjargað en bara tímabundið því
að dauði á krossi átti eftir að verða hlutskipti þess.
Það er hlutskipti okkar að segja barninu í Voitó frá
því að það eigi sér bróður í Jesú. Já, hann gekk
'• * 11 r k ... j |
* 'r-'M lírí. y'jl
Tvær glaðar Afríkutelpur. En heiðnin dæmir sum
börn til dauða ...
18