Bjarmi - 01.12.1995, Síða 23
talar um að góð samviska og sátt við Guð og menn
sé ein af afleiðingum trúarinnar á Guð og lífsins
með honum. Sálfræðingar og sálusorgarar vitna um
að eitt aðalvandamál margra samtímamanna okkar
sé að þeir þrái fyrirgefningu, að vera samþykktir
eins og þeir eru. Margir heyja erfiða glímu við þetta.
E.t.v. hafa þeir verið beittir misrétti eða yfirgangi og
bera þunga slæmrar sjálfsmyndar. Sárar minningar
eða misgjörðir úr fortíðinni þjaka aðra.
Jesús tók á sig eyðilegginguna sem þetta hafði í
för með sér í sambandinu við Guð. Ef þú hefur sagt
Guði frá því, sem þjakar, og beðið hann fyrir-
gefningar, þá ásakar hann þig ekki. Þér er fyrirgefið.
Þú þarft e.t.v. hjálp hans til að fyrirgefa sjálfum
þér eða samferðarmönnum þínum. Hann vill einnig
hjálpa til að bæta afleiðingar misgjörða á milli þín
og samferðamanna þinna.
Þetta tjáir Guð okkur á jólunum. Þú ert elskaður,
elskuð, eins og þú ert. Þú ert dýrmætur í augum
Guðs. Enginn kemur í þinn stað hjá honum fremur
en annað barn í stað barns elskandi foreldra. Hann
skapaði þig til blessunar sinnar. Guð vill fæðast að
nýju á meðal okkar og blessa líf okkar.
„Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom
nú í heiminn" (Jóhs. 1,9). „Nafn hans mun verða
Immanúel, það þýðir: Guð með oss“ (Matt. 1,23).
„En öllum þeiin, sem tóku við honum, gaf hann rétt
til að verða Guðs böm“ (Jóhs. 1,12).
Látum ekki mikinn og háværan umbúnað jólanna
ræna okkur friðnum til að íhuga þetta.
Guð blessi þig. Gleðileg jól.
Fæöa fyrir
hvern nýjan dag,
allt árið
Bókin Daglegt brauð er andlegt hollustufæði
fyrir okkar innri mann. Hún inniheldur stuttar
hugleiðingar fyrir hvern dag ársins, byggðar á
ritningarversum úr Biblíunni.
Þessi vandaða og veglega bók á erindi til allra
sem eru vandlátir um það hvað þeir innbyrða.
Verð kr. 2.450,-
ÖALÍ
ÚTGÁFUFÉLAG
Holtavegi 28, Reykjavík, sími 588 8829
23