Bjarmi - 01.12.1995, Qupperneq 26
AF VETTVANGI
Tónlistin er aö öllu
jöfnu, bæöi gefin út
á geisladiskum og
snældum.
Snældurnar eru þá
aðeins ódýrari.
hver í kapp við aðra, snertir kristilegu útgáfurnar
mismikið. Það er helst Skálholt sem verður vart við
hana. Edda Möller í Skálholti tekur fram að
þegar svona staða kemur upp, sé
einmitt gott að hafa eggin í fleiri körf-
um. Hún öfundar ekki þá útgefendur
sem eru eingöngu í bóksölu og reiða sig
alfarið á söluna fyrir jólin.
Samkeppni og
samstarf
Guðbjartur Guðbjartsson hjá Fíladelfíu telur
það hafa sína kosti að hófleg samkeppni ríki
á milli kristilegra forlaga, þar sem
hún veitir visst aðhald. Hins
vegar teiur hann að það sé óþarfi að
kristileg útgáfufyrirtæki komi með sams
konar bækur á svipuðum tíma. Edda
hjá Skálholtsútgáfunni tekur undir það
og bætir við að það þurfi að gefa svo
mikið út af kristilegu efni hér á landi
að slíkt ætti að vera óþarfi.
Tómas Torfason hjá Salt útgáfunni
nefnir að vegna útgáfuþjónust-
unnar hafi Salt átt mjög gott
samstarf við kirkjur og
kristileg félög og tekið
þátt í fjölda útgáfu-
verkefna á þeirra vegum. Þannig hafi
Salt t.d. hannað og brotið um bók
Fjölskyldufræðslunnar, „Þykir þér
raunverulega vœnt um mig“, auk
þess að halda utan um prent-
vinnslu og frágang hennar.
Saltútgáfan sækist eftir slíku
samstarfi, bætir Tómas við.
Framtíbin
Inntur eftir framtíðaráformum segir Guðbjartur hjá
Fíladelfíuforlagi að þau ætli að halda áfram á svip-
uðum nótum, þ.e. að leggja áherslu á innflutning,
gefa út minna en hnitmiðaðra og reyna að uppfylla
þarfirnar á markaðnum.
Saltútgáfan hefur stigið fyrsta skrefið í bókaútgáfu,
eftir endurvakningu félagsins. Fyrirhugað er að byggja
enn fremur upp útgáfuþjónustuna og taka fleiri skref
í bókaútgáfunni.
Skálholt er með margt á prjónunum. A þeim bæn-
um er ætlunin að halda áfram á sömu braut og taka
fá en örugg skref frarn á við. Edda hefur orðið vör
við aukinn áhuga almennu forlag-
anna á kristilegum bókum
og bókum sem byggja á
kristilegum viðhorfum.
Svo virðist sem jákvæð
viðhorfsbreyting hafi átt
sér stað meðal útgefenda og
bóksala gagnvart kristilegu
efni. Mun það eflaust setja
strik í reikninginn í komandi
framtíð.
Hér hefur ekki verið gerð
tæmandi úttekt á kristilegri
útgáfu. Þá er heldur ekki um
að ræða neitt mat á því efni
sem kynnt hefur verið. Markmiðið með þessari
samantekt er að gefa lesendum Bjarma örlitla innsýn
í kristilegt útgáfustarf, nú um stundir.
STEINAR WAAGE Toppskórinn
SKÓVERSLUN -i. 11 VIÐINGÓLFSTORG